Lokun Endurvinnslustöð Sorpu við Dalveg í Kópavogi verður lokað í haust.
Lokun Endurvinnslustöð Sorpu við Dalveg í Kópavogi verður lokað í haust. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Starfsmenn Sorpu undirbúa nú breytingar sem verða á starfsemi endurvinnslustöðva í haust. Endurvinnslustöðinni við Dalveg í Kópavogi verður lokað 1. september en áður en til þess kemur verður opnuð bráðabirgðastöð á Glaðheimasvæðinu við Reykjanesbraut

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Starfsmenn Sorpu undirbúa nú breytingar sem verða á starfsemi endurvinnslustöðva í haust. Endurvinnslustöðinni við Dalveg í Kópavogi verður lokað 1. september en áður en til þess kemur verður opnuð bráðabirgðastöð á Glaðheimasvæðinu við Reykjanesbraut. Mun hún nýtast íbúum Kópavogs og Garðabæjar þann tíma sem tekur að byggja nýja og fullbúna endurvinnslustöð á sama svæði.

Eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu stendur til að byggja nýja endurvinnslustöð Sorpu við Lambhagaveg í Reykjavík. Kemur hún í stað stöðvarinnar við Sævarhöfða. Jón Viggó Gunnarsson framkvæmdastjóri Sorpu segir í samtali við blaðið að hann búist við því að fyrsta skóflustunga að stöðinni verði tekin í næstu viku.

Ný endurvinnslustöð Sorpu við Lambhagaveg verður um tíu þúsund fermetrar að stærð og yfirbyggð að hluta. Kostnaður við byggingu hennar er áætlaður á bilinu 1,3-1,4 milljarðar króna, án vsk.

Kópavogsbær auglýsti í Morgunblaðinu í gær eftir áhugasömum aðilum um þróun lóðarinnar að Dalvegi 1, þar sem Sorpa er nú til húsa. Sem kunnugt er tilkynntu bæjaryfirvöld stjórnendum Sorpu árið 2022 að loka þyrfti móttökustöðinni við Dalveg og skila lóðinni eigi síðar en 1. september 2024. Lokuninni var síðar frestað um eitt ár. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, sagði á þeim tíma að umferð fyrir þungaflutninga væri ekki æskileg á svæðinu og skapaði auk þess mikla slysahættu. Áformað væri að annars konar starfsemi kæmi í staðinn á lóðinni en skipulagsáform bæjarins í Kópavogsdal miðuðu að því að dalurinn yrði fyrst og fremst nýttur á grundvelli sjónarmiða útivistar, lýðheilsu og íþróttastarfs.

Í auglýsingunni kemur fram að frestur til að skila inn hugmyndum um þróun lóðarinnar sé til loka júní. „Þeim sem eiga þá hugmynd sem valin er til áframhaldandi samstarfs verður boðið til viðræðna um lóðarvilyrði til tveggja ára. Innan þess tímaramma skal lóðarvilyrðishafi vinna að tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóðina í takt við sínar hugmyndir sem og hugmyndir Kópavogsbæjar sem settar voru fram í Heildarsýn fyrir Kópavogsdal, dags. 12. apríl 2024,“ segir í auglýsingunni.

Höf.: Höskuldur Daði Magnússon