Dagmál Líf Magneudóttir, oddviti VG í borginni, kveðst óviss um framhaldið.
Dagmál Líf Magneudóttir, oddviti VG í borginni, kveðst óviss um framhaldið. — Morgunblaðið/María
„Ég veit ekki einu sinni hvað verður ákveðið á vettvangi Vinstri-grænna, hvort við yfirhöfuð bjóðum fram eða hvað við ætlum að gera. Það ræðst á öðrum stað, allavega ekki hérna í Dagmálum,“ segir Líf Magneudóttir, oddviti Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, í Dagmálum í dag

„Ég veit ekki einu sinni hvað verður ákveðið á vettvangi Vinstri-grænna, hvort við yfirhöfuð bjóðum fram eða hvað við ætlum að gera. Það ræðst á öðrum stað, allavega ekki hérna í Dagmálum,“ segir Líf Magneudóttir, oddviti Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, í Dagmálum í dag.

Ljóst er því að óvissa ríkir um hvort flokkurinn bjóði fram í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fara á næsta ári. Eins og kunnugt er beið flokkurinn afhroð í þingkosningum á liðnum vetri og féll út af þingi. Samkvæmt borgarvita Maskínu frá því í apríl mælist VG með 3% fylgi. » 4