Grímur Grímsson
Grímur Grímsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Grímur Grímsson þingmaður Viðreisnar hefur tekið við sem annar varaforseti Alþingis. Tekur hann við af samflokksmanni sínum, Ingvari Þóroddssyni, sem farinn er í leyfi frá þingstörfum. Ástæða leyfisins er ákvörðun Ingvars um að sækja sér aðstoð vegna áfengisvandamáls

Kristján H. Johannessen

khj@mbl.is

Grímur Grímsson þingmaður Viðreisnar hefur tekið við sem annar varaforseti Alþingis. Tekur hann við af samflokksmanni sínum, Ingvari Þóroddssyni, sem farinn er í leyfi frá þingstörfum. Ástæða leyfisins er ákvörðun Ingvars um að sækja sér aðstoð vegna áfengisvandamáls. Heiða Ingimarsdóttir varaþingmaður Viðreisnar tekur sæti Ingvars á Alþingi.

Brást sínu fólki

Ingvar tilkynnti ákvörðun sína á samfélagsmiðlum snemma í gærmorgun. Sagði hann meðal annars að hann ætti enga samleið með áfengi og að mikilvægt væri fyrir sig að hætta neyslu þess.

„Seinasta haust horfðist ég í fyrsta skiptið í augu við það að ég og áfengi ættum ekki samleið. Ég sá að ég ætti við drykkjuvanda að stríða og þyrfti að hætta. Ég tók mikilvæg en á köflum erfið skref í rétta átt og tókst nokkuð vel að snúa blaðinu við þó ég segi sjálfur frá,“ skrifar Ingvar í færslu sinni.

„Því miður hefur orðið bakslag í þessum efnum. Ég missteig mig, og get engum um kennt nema sjálfum mér. Ég er miður mín gagnvart vinum mínum og fjölskyldu sem ég hef valdið vonbrigðum, sem og samstarfsfélögum á þinginu og í Viðreisn. Ég ætla mér að snúa blaðinu við svo ég geti staðið almennilega undir því sem ég lofaði kjósendum mínum,“ segir hann.

Höf.: Kristján H. Johannessen