— Morgunblaðið/Eggert
Fram tryggði sér í gærkvöld Íslandsmeistaratitil karla í handknattleik í ellefta skipti og í fyrsta sinn í tólf ár með því að vinna Val, 28:27, á Hlíðarenda í þriðja úrslitaleik liðanna. Þorsteinn Gauti Hjálmarsson skoraði sigurmarkið nokkrum…

Fram tryggði sér í gærkvöld Íslandsmeistaratitil karla í handknattleik í ellefta skipti og í fyrsta sinn í tólf ár með því að vinna Val, 28:27, á Hlíðarenda í þriðja úrslitaleik liðanna. Þorsteinn Gauti Hjálmarsson skoraði sigurmarkið nokkrum sekúndum fyrir leikslok og Fram vann einvígið á sannfærandi hátt, 3:0. Framarar eru þar með ­tvöfaldir meistarar á tímabilinu því að þeir urðu einnig bikarmeistarar í vetur en óhætt er að segja að þeir hafi komið skemmti­lega á óvart. » 27