Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Sjö þúsund nemendur í 26 grunnskólum landsins þreyttu samræmd könnunarpróf í lesskilningi og stærðfræði í vor. Um var að ræða prufukeyrslu á svokölluðum matsferli sem leysa á gömlu samræmdu könnunarprófin af hólmi.
Í tilkynningu mennta- og barnamálaráðuneytisins segir að fyrirlögnin hafi gengið vel en tilgangur hennar hafi verið að leggja lokahönd á stöðlun og þróun prófanna, auk þess að prófa þau í framkvæmd.
Leggja á prófin fyrir nemendur frá 4. bekk og upp úr í öllum grunnskólum landsins næsta vor. Prófin verða skyldubundin í 4., 6. og 9. bekk, samkvæmt frumvarpi sem nú er til meðferðar á Alþingi.
Fimm ár liðin
Samræmd könnunarpróf voru síðast lögð fyrir íslenska grunnskólanema fyrir fimm árum. Samkvæmt núgildandi lögum á að leggja slík próf fyrir á hverju ári. Þegar samræmdu könnunarprófunum var fyrst frestað árið 2021, þegar fyrirlögn þeirra mistókst, boðaði þáverandi menntamálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, ný hæfnimiðuð samræmd könnunarpróf vorið 2022. Síðar var því frestað til ársbyrjunar 2025. Nú liggur fyrir að það verður ekki fyrr en í fyrsta lagi vorið 2026 sem könnunarpróf verða lögð fyrir grunnskólanema um allt land.