Fyrsta mastur Suðurnesjalínu 2 af 50 er risið og „markar það tímamót“ segir á vef Landsnets.
Verktakafyrirtækið Elnos frá Bosníu og Hersegóvínu sá um að reisa mastrið í sól og blíðu við Kúagerði í vikunni. Það blasir nú við vegfarendum á Reykjanesbrautinni, „við hlið systur sinnar, Suðurnesjalínu 1“.
Landsnet segir að 50 möstur hafi þegar verið sett saman og þau muni rísa hvert á fætur öðru á næstu dögum.
Samkvæmt tilkynningu á vef Landsnets er framkvæmdin nauðsynleg til að auka afhendingaröryggi raforku á Suðurnesjum og auka flutningsgetu raforkukerfisins milli þeirra og höfuðborgarsvæðisins.
Landsnet bendir á að íbúum á Suðurnesjum hafi fjölgað mikið og hratt á undanförnum árum. Í Reykjanesbæ hafi orðið mest fjölgun á landsvísu eða um 20% frá 2015.
„Á Suðurnesjum hefur eftirspurn eftir raforku því aukist hraðar en annars staðar,“ segir á vef Landsnets. Auk fólksfjölgunar hafi gagnaver og Keflavíkurflugvöllur áhrif.