Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Stöðfirðingurinn Björn Hafþór Guðmundsson gaf út hljómdiskinn Við skulum ekki hafa hátt á nýliðnu ári og verður með útgáfutónleika í Stöðvarfjarðarkirkju á morgun, laugardaginn 24. maí, og hefjast þeir kl. 16.00. Til stóð að hafa þá fyrr en ýmislegt kom í veg fyrir það, svo sem hlaðborðavertíðin í aðdraganda jóla og heilsuefling útgefanda. „Svo gátu lykilmenn ekki mætt fyrr en í maí,“ segir hann um frumraun sína á þessu sviði.
Björn Hafþór var kennari á Stöðvarfirði í 14 ár, sinnti íþróttamálum og starfaði við sveitarstjórnarmál fyrir austan í 38 ár, þar til hann hætti störfum 2020. Hann var til dæmis sveitarstjóri bæði á Stöðvarfirði og Djúpavogi, bæjarstjóri Austur-Héraðs og formaður og síðar framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. „Ég hef átt útgefin lög og texta áður, til dæmis tvö lög og texta á plötunni Austfirskum staksteinum 3 með Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar á Akureyri, sem á reyndar rætur að rekja austur. Með útgáfum sínum hefur Friðjón varðveitt austfirska tónlist, sem annars hefði sennilega aldrei verið gefin út, og því á ákveðinn hátt gert sitt til þess að bjarga ákveðnum menningarverðmætum.“
Diskur og plata
Á nýja diskinum eru 14 lög eftir Björn Hafþór og þar á meðal tvö fyrrnefnd lög. Textarnir, að tveimur undanskildum, eru einnig eftir hann. Hrönn Jónsdóttir gerði textann við titillagið „Við skulum ekki hafa hátt“ og textinn „Bar-lómur“ er eftir Stefán S. Bragason. „„Veröld sem var“ er ádeilutexti sem útgefandinn samdi út af ástandinu í heiminum, sem var reyndar ekki alveg hægt að sjá fyrir þegar hann var saminn.“
Árið 1962 vantaði bassaleikara í hljómsveitina Esskó á Eskifirði. „Keyptur var handa mér bassi og ég munstraður sem bassaleikari. Byrjaði að spila á böllum 15 ára gamall,“ segir Björn Hafþór um upphaf tónlistarferilsins. Mest hafi verið að gera í landlegum á síldarárunum sem og um áramót. „Ég var orðinn þreyttur á nafninu Esskó og heimtaði að við nefndum bandið Ágúst berhenti. Þetta voru ekki þekktar hljómsveitir, nema þá í heimabyggð og næsta nágrenni.“
Björn Hafþór hafði föndrað við textagerð en var blautur bak við annað eyrað þegar kom að hljóðfæraleik og söng. „Þegar á leið var ég alveg frambærilegur í hópnum,“ segir hann og leggur áherslu á að hann hafi aldrei farið í tónlistarskóla heldur spilað eftir eyranu. Lagið „Tíminn tifar“ sé það eina á diskinum þar sem hann spili á gítar og syngi, en annars hafi hann fengið sérfræðinga í verkið. „Ég er stoltastur af því og það er til eftirbreytni að ég leitaði nánast eingöngu til austfirskra tónlistarmanna. Þeirra þekktastir eru söngvararnir Guðmundur Rafnkell Gíslason, Friðjón Ingi Jóhannsson og Einar Ágúst Víðisson og hljómborðsleikarinn Svavar Sigurðsson, stofnandi Hammondhátíðar Djúpavogs.“
Um 30 manns komu að vinnu við diskinn á einn eða annan hátt og verið er að ganga frá útgáfu vínilplötu með 10 lögum af honum. Daníel Arason sá um útsetningar og upptökur að mestu, en Gunnar Smári Helgason annaðist hljóðblöndun. „Lögin spanna alla flóruna, þarna eru meðal annars blús, vals, vangalög, reggae-tónlist og ekta austfirskt rokk,“ segir Björn Hafþór, sem heillast mest af tónlist eftir Beethoven, Bítlana, Moody Blues, Crosby, Stills, Nash & Young og Gunnar Þórðarson.