Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Allt frá árinu 2002 hafa Ólafsvíkingar heiðrað minningu frumkvöðulsins Ottós A. Árnasonar með móti sem hefur vaxið svo að vinsældum að telja má eitt fjölsóttasta skákmótið hér innanlands. Einn helsti hvatamaður mótsins, Gunnar Gunnarsson, féll frá fyrir tveimur árum og skipuleggjendur þess í ár, með þá Tryggva Leif Ottósson, Sigurð Scheving og Rafn Guðlaugsson í broddi fylkingar, ákváðu að tileinka mótshaldið minningu þeirra beggja, Ottós og Gunnars.
Sem fyrr leituðu forsvarsmenn stuðnings fyrirtækja í Ólafsvík og grennd en keppt var í hinu glæsilega félagsheimili Ólafsvíkur, Klifi. Allar aðstæður voru með besta móti.
Í ár hófu 77 skákmenn þátttöku og var keppt í ýmsum verðlaunaflokkum. Mótið stóð í einn dag og hófst upp úr hádegi þann 17. maí og voru tefldar átta umferðir, fyrstu fjórar voru hraðskákir með tímamörkunum 5:2 og síðustu fjórar atskákir með tímamörkunum 10:5. Jóhann Hjartarson kom, sá og sigraði, hlaut 7 vinninga af 8 mögulegum, en á lokasprettinum vann hann tvær lykilskákir gegn þeim Hannesi Hlífari Stefánssyni og Vigni Vatnari Stefánssyni.
Vignir Vatnar varð í 2. sæti með 6½ vinning og síðan komu sjö skákmenn með 6 vinninga en af þeim varð Bragi Þorfinnsson efstur á mótsstigum og hlaut 3. verðlaun.
Aðrir verðlaunahafar voru Lenka Ptacnikova sem náði bestum árangri kvenna, Benedikt Þórisson með bestan árangur keppenda undir 2.000 Elo-stigum og Aron Ellert Þorsteinsson sem varð hlutskarpastur keppenda undir 1.800 Elo-stigum. Ólafur Ásgrímsson náði bestum árangri keppenda 80 ára og eldri, Helgi Ólafsson var bestur í flokki keppenda 65 ára og eldri, Emilía Embla Berglindardóttir hlaut verðlaun fyrir bestan árangur stúlkna 16 ára og yngri, Birkir Hallmundarson náði bestum árangri keppenda 16 ára og yngri. Tryggvi Leifur Ottósson náði bestum árangri heimamanna og Rögnvaldur Örn Jónsson hlaut verðlaun fyrir bestan árangur Vikaraliðsins svonefnda. Skákstjóri var Páll Sigurðsson.
Við mótsslit kom fram að Jóhann hefur tekið þátt í öllum mótunum í Ólafsvík og er einn þriggja sem unnið hafa mótið tvisvar. Aðrir eru Hannes Hlífar Stefánsson og Helgi Ólafsson. Þá var Gylfi Scheving gerður að heiðursfélaga í Taflfélagi Snæfellsbæjar og fékk afhent gullmerki við það tækifæri.
Öll úrslit mótsins má finna á slóðinni: https://chess-results.com. Stefnt er að því að halda minningarmótið aftur eftir tvö ár.