Hvalaskoðunarbáturinn Garðar hefur verið notaður í hvalaskoðun frá Húsavíkurhöfn í hartnær 16 ár. Norðursigling á Húsavík býður upp á ýmiss konar hvalaskoðanir í Skjálfandaflóa yfir sumartímann og fer því vertíðin að hefjast.
Már Höskuldsson skipstjóri segir í samtali við Morgunblaðið að sumarið hafi byrjað vel og aðsókn í hvalaskoðun hafi verið góð miðað við árstíma. Hvölum fór að fjölga í Skjálfandaflóa í lok apríl, að sögn Más, og enn á eftir að bætast í fjöldann. Hvalaskoðunarbáturinn Garðar er nú í Húsavíkurslipp þar sem unnið er að því að gera hann tilbúinn fyrir sumarvertíðina, sem nær hámarki í júní og nær fram í ágúst. Garðar er stærsti hvalaskoðunarbáturinn á Húsavík og stefnir á fyrstu ferð sumarsins í byrjun júní en siglingar hafa staðið yfir frá því í mars.