Óskar Bergsson
Agnar Már Másson
Reykjavíkurborg tók fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa, með umsögn um kjötvinnslu í vöruskemmunni við Álfabakka, út af heimasíðu sinni á miðvikudag, breytti henni og birti aftur daginn eftir. „Okkur fannst þetta ekki alveg málefnalegt innlegg,“ segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri spurð út í breytingarnar.
Mbl.is greindi frá forvitnilegri umsögn skipulagsfulltrúa á þriðjudag þar sem fram kom að leyfi til að gera ljótar byggingar væri mikið á Íslandi. „Löggjafinn spyr hvorki um fagurfræði né samhengi. Það er því sorgleg staðreynd að þeir sem fara með völd, fjármagn og fyrirferðarmikinn rekstur skuli ekki sýna frekari metnað í uppbyggingu á miðsvæðum höfuðborgarsvæðisins. Fagurfræði er ekki smekkur – fagurfræði er samhengi – og þessa byggingu skortir slíkt,“ sagði í umsögninni, sem Borghildur Sölvey Sturludóttir, deildarstjóri hjá skipulagsfulltrúa, skrifaði undir.
Í þeirri fundargerð sem nú hefur verið birt á heimasíðu borgarinnar hefur þessi texti verið tekinn út, þar sem hann þótti ekki málefnalegur, að sögn borgarstjóra. „Við verðum auðvitað að vera með skýr skilaboð til uppbyggingaraðila um hvaða gæðum og fegurð við erum að sækjast eftir. En um leið er fegurð bara afstæð og hverjum þykir hvað fagurt. Og okkur fannst þetta ekki alveg málefnalegt innlegg,“ segir Heiða í samtali við Morgunblaðið.
Læra af gímaldinu eins og öðrum málum sem koma upp
Eins og fram kemur á forsíðu blaðsins var Björn Axelsson skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar leystur frá störfum. Brynjar Þór Jónasson byggingarfulltrúi tekur við sameinaða embættinu en Birni hefur verið boðið starf á öðru sviði, að sögn Heiðu, en hún gefur ekki upp hvar.
Sameiningin er hluti af stærri skipulagsbreytingum sem eiga m.a. að auka skilvirkni í borgarskipulagsmálum. Auk þess segir Heiða að borgin vilji setja skýrari leiðbeiningar í deiliskipulag til að „koma í veg fyrir að ákveðnir hlutir endurtaki sig, uppbygging sem okkur hefur ekki þótt til sóma“, og vísar þar m.a. til kjötvinnslunnar. „Við þurfum að læra af öllu sem við erum ekki stolt af.“
Mikið hefur mætt á embætti Björns Axelssonar skipulagsfulltrúa, ekki síst eftir að bygging vöruhússins komst í hámæli. Embættisfærslur hans vegna græna gímaldsins svokallaða hafa verið gagnrýndar harðlega en Heiða neitar því að sameining embættanna hafi nokkuð með þær að gera. „Og auðvitað erum við að læra af gímaldinu og öðrum málum sem hafa komið upp.“