Úr dvala Vorið hefur verið hlýtt í ár og ýmis skordýr verið fyrr á sveimi.
Úr dvala Vorið hefur verið hlýtt í ár og ýmis skordýr verið fyrr á sveimi. — Morgunblaðið/Golli
Ýmsar skordýrategundir hafa birst óvenju snemma í sumar en gott og hlýtt veður er ein meginástæðan fyrir því. Matthías Svavar Alfreðsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, segir við Morgunblaðið að ýmsar fiðrildategundir hafi farið á flug óvenju snemma þetta árið

Signý Pála Pálsdóttir

signyp@mbl.is

Ýmsar skordýrategundir hafa birst óvenju snemma í sumar en gott og hlýtt veður er ein meginástæðan fyrir því.

Matthías Svavar Alfreðsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, segir við Morgunblaðið að ýmsar fiðrildategundir hafi farið á flug óvenju snemma þetta árið. Matthías nefnir sem dæmi tegundirnar mýrfeta, túnfeta og grenivefara, sem eru fiðrildategundir sem þegar hafa tekist á flug. Auk fiðrildanna hafa svokallaðar folaflugur sést á húsveggjum, sem þykir mjög óvenjulegt svona snemma sumars. Vanalega hefst flugtími folaflugna ekki fyrr en um mitt sumar og því er ljóst að flugnategundin er mun fyrr á sveimi en vanalega.

Matthías gat þó ekki svarað því að almennt væri meira um skordýr í ár, þar sem sumarið væri rétt að byrja. Tók hann þó fram að stofnsveiflur á milli ára væru eðlilegar.

Óvissa með lúsmý

Á samfélagsmiðlum má sjá umræðu um hvort lúsmý sé farið að láta á sér bera og sé farið að bíta, en lúsmý hefur hrellt almenning undanfarin sumur. Matthías gat ekki útilokað að lúsmý væri farið að bíta en tók það fram að ýmis önnur bitmý og flær væru komin úr vetrardvala og farin að bíta.

Sjálfur hefur Matthías ekki orðið var við lúsmý í sínum gildrum en hann segir mýið yfirleitt ekki birtast fyrr en um miðjan júní. Ef veður verður áfram hlýtt og gott segir hann allt eins mega búast við því að flugurnar verði fyrr á sveimi en venjulega.

Höf.: Signý Pála Pálsdóttir