Sprenging Rúða í kjallaranum virðist hafa brotnað við sprenginguna en ekki er vitað hvað olli henni. Allt tiltækt lið viðbragðsaðila var kallað til.
Sprenging Rúða í kjallaranum virðist hafa brotnað við sprenginguna en ekki er vitað hvað olli henni. Allt tiltækt lið viðbragðsaðila var kallað til. — Morgunblaðið/Eyþór
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Einn lést eftir að sprenging varð og mikill eldur kom upp í kjallaraíbúð í fjölbýlishúsi við Hjarðarhaga í vesturbæ Reykjavíkur í gærmorgun. Allt tiltækt lið viðbragðsaðila var kallað út eftir að tilkynnt var um sprengingu við Hjarðarhaga 40-48 laust eftir klukkan tíu

Agnar Már Másson

agnarmar@mbl.is

Einn lést eftir að sprenging varð og mikill eldur kom upp í kjallaraíbúð í fjölbýlishúsi við Hjarðarhaga í vesturbæ Reykjavíkur í gærmorgun.

Allt tiltækt lið viðbragðsaðila var kallað út eftir að tilkynnt var um sprengingu við Hjarðarhaga 40-48 laust eftir klukkan tíu. Mikill viðbúnaður var á vettvangi og reyk lagði frá kjallara hússins vegna eldsins.

Þrír fullorðnir karlmenn voru í íbúðinni. Einn þeirra lést og voru hinir fluttir á slysadeild. Annar þeirra er alvarlega slasaður, að sögn lögreglu. Að sögn sjónarvotta kom einn maður alblóðugur út um glugga á kjallara. Íbúar stóðu fyrir utan og fylgdust með aðgerðum auk þess sem lögregla tók skýrslu af þeim.

Enn er óljóst hvað orsakaði sprenginguna. Miðlæg rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið við rannsókn á eldsupptökunum.

„Það var eldur í fleiri en einu rými í húsinu en þó má segja að greiðlega hafi gengið að slökkva hann og okkar fólk stóð sig frábærlega,“ sagði Vernharð Guðnason, deildarstjóri hjá slökkviliðinu. Einn maður komst út af sjálfsdáðum en bjarga þurfti tveimur úr íbúðinni.

Höf.: Agnar Már Másson