HR Skólinn býst við 1.200 stelpum og stálpum á kynningarfundinn í dag. Í næsta mánuði verður svo strákum boðið að koma í heimsókn.
HR Skólinn býst við 1.200 stelpum og stálpum á kynningarfundinn í dag. Í næsta mánuði verður svo strákum boðið að koma í heimsókn. — Morgunblaðið/Eggert
Háskólinn í Reykjavík (HR) býður í dag stelpum og stálpum úr 9. bekkjum grunnskóla höfuðborgarsvæðisins í heimsókn. Er þetta í 12. skiptið sem kynningarfundurinn er haldinn á vegum skólans, en að sögn Ásthildar Gunnarsdóttur samskiptastjóra HR er…

Sveinn Valfells

sveinnv@mbl.is

Háskólinn í Reykjavík (HR) býður í dag stelpum og stálpum úr 9. bekkjum grunnskóla höfuðborgarsvæðisins í heimsókn.

Er þetta í 12. skiptið sem kynningarfundurinn er haldinn á vegum skólans, en að sögn Ásthildar Gunnarsdóttur samskiptastjóra HR er markmið viðburðarins að kynna þær tæknigreinar sem kenndar eru í skólanum og auka áhuga stúlkna og stálpa á þeim þar sem almennt séu konur og stálp í minnihluta í þeim greinum.

Ásthildur segir að búist sé við 1.200 stelpum og stálpum en á fundinum kynna íslensk tæknifyrirtæki á borð við JBT Marel, CCP, Origo og Síminn starfsemi sína.

Bjóða nú einnig strákum

Mikil umræða skapaðist um viðburðinn árið 2023 þegar í ljós kom að ekki stæði til að halda sambærilegan kynningarfund fyrir drengi. Vakti það einkum athygli í ljósi umræðu um stöðu drengja innan menntakerfisins.

Hyggst skólinn nú bæta úr því og heldur því í fyrsta skipti sambærilegan fund 4. júní næstkomandi, þar sem öllum drengjum í 9. bekk í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu er boðið.

Ber fundurinn heitið Strákar og stálp í háskóla, en í tilkynningu um fundinn er haft eftir Ragnhildi Helgadóttur rektor skólans að nauðsynlegt sé að fá fleiri stráka í skólann. Þó að strákar séu meirihluti nemenda í HR segist Ragnhildur vona að kynningin veki áhuga á fjölbreyttri menntun og þeim leiðum sem hún getur opnað.

Hvað nafngiftina varðar tekur Ragnhildur fram í tilkynningunni að háskólinn hafi að loknu samráði við Samtökin '78 og Trans Ísland ákveðið að halda nafngiftinni í takt við hinn viðburðinn enda sé skólanum annt um að enginn upplifi sig óvelkominn.

Þá segir Ragnhildur það vera hluta af samfélagslegri ábyrgð skólans að breiða út boðskapinn um mikilvægi menntunar með hinum ýmsu leiðum, burtséð frá öðrum markmiðum, og að viðburðurinn sé liður í því starfi.

Höf.: Sveinn Valfells