Borgin Hildur og Líf eru gestir Andreu í þætti dagsins í Dagmálum.
Borgin Hildur og Líf eru gestir Andreu í þætti dagsins í Dagmálum.
Þær Hildur Björnsdóttir og Líf Magneudóttir eru gestir Andreu Sigurðardóttur í Dagmálum í dag. Hildur er oddviti Sjálfstæðisflokksins, sem er í minnihluta í borginni, en Líf er oddviti Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sem er í meirihluta

Þær Hildur Björnsdóttir og Líf Magneudóttir eru gestir Andreu Sigurðardóttur í Dagmálum í dag. Hildur er oddviti Sjálfstæðisflokksins, sem er í minnihluta í borginni, en Líf er oddviti Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sem er í meirihluta.

Í þættinum eru skipulagsmál borgarinnar ítarlega rædd og skeggrætt hvort of mikil þétting byggðar sé afleiðing ákvarðana einkaaðila sem að uppbyggingunni koma, eins og Líf telur, eða afleiðing pólitískrar stefnumörkunar, eins og Hildur heldur fram.

Þá eru fjármálin rædd, en í oddvitaumræðum um ársreikning síðasta árs sagði Líf reikninginn vera svolítið „ble-la“. Í dag varpar hún ljósi á þýðingu þess, en margir lesendur blaðsins hafa klórað sér í kollinum yfir hugtakinu.