Skotárás Mikill viðbúnaður var við safnið í fyrrakvöld eftir ódæðið.
Skotárás Mikill viðbúnaður var við safnið í fyrrakvöld eftir ódæðið. — AFP/Alex Wroblewsky
Lögreglan í Washington-borg handtók mann í fyrrakvöld eftir að hann skaut tvo starfsmenn ísraelska sendiráðsins í Bandaríkjunum til bana fyrir utan Capital Jewish Museum, sögusafn gyðinga í borginni

Signý Pála Pálsdóttir

signyp@mbl.is

Lögreglan í Washington-borg handtók mann í fyrrakvöld eftir að hann skaut tvo starfsmenn ísraelska sendiráðsins í Bandaríkjunum til bana fyrir utan Capital Jewish Museum, sögusafn gyðinga í borginni.

Að sögn sjónarvotta gekk maður vopnaður skammbyssu upp að hópi fólks sem stóð fyrir utan safnið og hóf skothríð með þeim afleiðingum að maður og kona létust.

Árásarmaðurinn, Elias Rodriguez, er þrítugur og frá Chicago. Öryggisvörður safnsins hélt í fyrstu að Elias væri sjálfur fórnarlamb skotárásarinnar og hleypti honum inn í safnið þar sem fólk hughreysti hann. Hann viðurkenndi loks sök og bað um að hringt yrði í lögregluna. Lögregla handtók Rodriguez sem sönglaði „frjáls, frjáls Palestína“ við handtökuna framan í myndavélar fjölmiðla.

Einungis eru nokkrir dagar frá því að safnið fékk heimild fyrir hertri öryggisgæslu en mikill órói hefur ríkt í kringum safnið í kjölfar aðgerða Ísraelshers á Gasasvæðinu.

Ísraelsk stjórnvöld hafa nafngreint fórnarlömb skotárásarinnar en þau hétu Yaron Lischinsky og Sarah Lynn Milgrim. Voru þau par og var Yaron sagður hafa ætlað að biðja Söruh í ferð til Jerúsalem, en parið hugðist heimsækja borgina í næstu viku. Sarah var bandarísk en Yaron með þýskt og ísraelskt ríkisfang.

Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels fordæmdi árásina í gær sem og Donald Trump Bandaríkjaforseti og sögðu þeir báðir að árásina mætti rekja til gyðingahaturs. Þá hafa stjórnvöld í ýmsum ríkjum, þ. á m. Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi, einnig fordæmt árásina.

Höf.: Signý Pála Pálsdóttir