Stórsveit Reykjavíkur heldur tónleika í Silfurbergi, Hörpu, á sunnudaginn, hinn 25. maí, klukkan 20. Segir í tilkynningu að um sé að ræða árlega tónleika hljómsveitarinnar þar sem frumflutt verði ný íslensk tónlist eftir ólíka íslenska höfunda
Stórsveit Reykjavíkur heldur tónleika í Silfurbergi, Hörpu, á sunnudaginn, hinn 25. maí, klukkan 20. Segir í tilkynningu að um sé að ræða árlega tónleika hljómsveitarinnar þar sem frumflutt verði ný íslensk tónlist eftir ólíka íslenska höfunda. Höfundar ársins eru Eiríkur Orri Ólafsson, Hafdís Bjarnadóttir, Hróðmar Sigurðsson, Guðmundur Steinn Gunnarsson, Samúel J. Samúelsson, sem einnig stjórnar sveitinni, Tumi Árnason og Þórdís Gerður Jónsdóttir.