Listakona Tinna hefur sérhæft sig í flutningi á samtímatónlist.
Listakona Tinna hefur sérhæft sig í flutningi á samtímatónlist. — Ljósmynd/Garðabær
Tinna Þorsteinsdóttir var útnefnd bæjarlistamaður Garðabæjar við hátíðlega athöfn í Sveinatungu. Tinna hefur um áratugaskeið sérhæft sig í flutningi á samtímatónlist og hefur frumflutt um 100 einleiksverk fyrir píanó sem samin hafa verið fyrir hana í gegnum tíðina

Tinna Þorsteinsdóttir var útnefnd bæjarlistamaður Garðabæjar við hátíðlega athöfn í Sveinatungu. Tinna hefur um áratugaskeið sérhæft sig í flutningi á samtímatónlist og hefur frumflutt um 100 einleiksverk fyrir píanó sem samin hafa verið fyrir hana í gegnum tíðina.

Tinna hefur einnig vakið athygli fyrir áhugaverðar listsmiðjur með börnum. Þess má geta að tónskáldið Karólína Eiríksdóttir, sem var bæjarlistamaður Garðabæjar 2015, er móðir Tinnu. Við athöfnina lék Tinna Twin Suns úr verkinu Makrokosmos eftir George Crump.