Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Miklar breytingar hafa orðið á svæðinu í kringum Hlemm að undanförnu. Lokaáfangi framkvæmda þar hefst í sumar.
Vegfarendur í miðborg Reykjavíkur hafa séð Hlemmsvæðið taka miklum breytingum. Nú hefur verið hellulagt í kringum biðstöðina gömlu og komið fyrir bekkjum. Þá hefur verið sett upp spennandi leiksvæði fyrir börn og kallast það Hlemmur Leikhöll. Á leiksvæðinu eru tæki þar sem unga kynslóðin getur dundað sér í góða veðrinu í sumar. Síðar verður sett upp svið á þessu svæði þar sem hægt verður að bjóða upp á ýmiss konar viðburði.
Klyfjahestur, verk Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara, er nú komið á sinn varanlega stað við torgið og setur sinn svip á umhverfið.
„Verkið sýnir folaldsmeri með klyfjum. Vinstra megin ber hún planka, en koffort og pinkla hægra megin. Í humátt á eftir henni töltir folald og hnusar af móður sinni. Folaldið er með í för til að árétta að listamaðurinn sé að fjalla um aðstæður fátæka bóndans sem ekki hafi efni á að hlífa folaldsmeri sinni við klyfjum,“ segir í umfjöllun Listasafns Reykjavíkur um verkið.
„Sigurjón hafði ungur fylgst með bændum á ferð með klyfjaða hesta sína í kaupstaðaferðum á Eyrarbakka. Til er ljósmynd frá 1890 af slíkri kaupstaðarferð sem talið er að listamaðurinn hafi haft til hliðsjónar. Hann vann síðan að hugmyndinni á árunum 1959-63 og verkið var steypt í brons hjá Lauritz Rasmussen í Kaupmannahöfn 1965,“ segir þar enn fremur.
Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg er fjórða áfanga endurbótanna nú að ljúka. Í fimmta áfanga eru fram undan framkvæmdir á aðliggjandi svæðum. Búist er við því að hafist verði handa við fimmta áfanga í júní eða júlí og að verkinu verði lokið næsta vor eða snemmsumars 2026. Í fimmta áfanga verður hinu sögufræga húsi Norðurpólnum komið fyrir á torginu en það stóð áður við Hverfisgötu 125.