Signý Pála Pálsdóttir
signyp@mbl.is
Bikblæðingar á vegum hafa verið mikið vandamál víða um land að undanförnu og valdið miklu tjóni á ökutækjum.
Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs Vegagerðarinnar, segir í samtali við Morgunblaðið að mest hafi verið um bikblæðingar á Vesturlandi og nefndi þar Snæfellsnes, Bröttubrekku og Borgarfjörð, en einnig Austurland, Norðurland og uppsveitir Suðurlands.
Blæðingarnar geta valdið tjóni á bílum ef bikið harðnar á dekkjum og skýst í bílinn eða í aðra bíla í kring. Sömuleiðis getur tjaran hlaðist á dekk og leitt til þess að fólk missi stjórn á bílnum vegna dekkjaskemmda.
Bikblæðingar verða þegar bik losnar frá klæðningu og flýtur ofan á henni. Bikið festist síðan við allt sem fyrir verður. Blæðingar verða einungis á klæðningu en ekki á malbiki.
Malbikið er fimm sinnum dýrara og því of kostnaðarsamt að nota slíkt um allt land. Bergþóra segist gjarnan vilja malbika meira, en ekki fæst fjármagn í það. Hún bindur vonir við viðbótarfjármagn í vegakerfið frá stjórnvöldum.
FÍB hefur áhyggjur
Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB segir við Morgunblaðið að félagið hafi miklar áhyggjur af stöðu mála, blæðingarnar séu mikið vandamál. Þær séu orðnar alltof algengar og verði bæði á veturna og sumrin. Hann segir mjög algengt að tilkynna þurfi tjón til tryggingarfélaga vegna afleiðinga bikblæðinganna.
Runólfur segir ákveðið neyðarástand ríkja í innviða- og vegakerfinu hérlendis og vill að malbik verði notað frekar en klæðning.
Bergþóra brýnir fyrir fólki að aka hægt um svæði þar sem bikblæðingar eru og tilkynna til Vegagerðarinnar ef það verður vart við blæðingar.