Rafmyntir Samkvæmt nýjustu gögnum hafa bitcoin-kauphallarsjóðir hlotið meira innstreymi fjár á síðustu 2-3 vikum en gullsjóðir.
Rafmyntir Samkvæmt nýjustu gögnum hafa bitcoin-kauphallarsjóðir hlotið meira innstreymi fjár á síðustu 2-3 vikum en gullsjóðir. — AFP/Giuseppe Cacace
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Daði Kristjánsson, stofnandi Visku Digital Assets, segir í samtali við Morgunblaðið að það sé að eiga sér stað vitundarvakning meðal stofnanafjárfesta um rafmyntir. „Fyrir nokkrum árum voru rafmyntir mikið gagnrýndar og umræðan einkenndist af…

Fréttaskýring

Magdalena Anna Torfadóttir

magdalena@mbl.is

Daði Kristjánsson, stofnandi Visku Digital Assets, segir í samtali við Morgunblaðið að það sé að eiga sér stað vitundarvakning meðal stofnanafjárfesta um rafmyntir.

„Fyrir nokkrum árum voru rafmyntir mikið gagnrýndar og umræðan einkenndist af vanþekkingu en það er minna um það í dag,“ segir Daði.

Hann rifjar upp að þegar hann stofnaði Visku hafi menn talið að hann væri galinn.

„Viðhorfið hefur breyst til hins betra og fólk sér betur hvers vegna við erum að vinna að þessu. Þetta er eignaflokkur sem býður upp á gríðarleg tækifæri – og Ísland ætti ekki að sitja hjá.“

Daði bendir á að nýverið greiddi öldungadeild Bandaríkjaþings atkvæði um frumvarp sem varðar stöðugleikamyntir. Daði segir þetta „jákvætt og stórt skref“ í átt að skýrara regluumhverfi í kringum rafmyntir og notkun þeirra í hefðbundnu greiðslukerfi.

„Við munum sjá aukna reglusetningu og skýrari leikreglur sem eru nauðsynlegar fyrir tækniinnviði geirans,“ bætir hann við.

„Það eru stórar fréttir að koma inn nánast daglega. Við sjáum þjóðarsjóðinn í Abú Dabí fjárfesta í bitcoin og nokkur bandarísk ríki hafa nú þegar undirritað frumvörp sem heimila fjárfestingar í rafmyntum sem hluta af varasjóðum ríkjanna.“

Daði segir að staðan á rafmyntamörkuðum hafi verið góð síðustu vikur. Miklar sveiflur hafi átt sér stað á mörkuðunum.

„Við sjáum að rafmyntir hafa hreyfst hraðast allra eignaflokka síðustu vikur, sérstaklega eftir svokallaðan „frelsisdag“ hjá Trump í byrjun apríl. Þetta virðist hafa verið vendipunktur,“ segir Daði.

Bjartsýnn á horfurnar

Bitcoin sló í 112.000 dollara markið í vikunni, sem er nýtt hágildi, og að sögn Daða ríkir mikil seigla í geiranum þrátt fyrir óróa á mörkuðum á árinu. „Við höfum séð skörp umskipti frá botni. Þetta sýnir að eignaflokkurinn stendur sig vel, jafnvel í ólgusjó.“

Athygli vekur að samkvæmt nýjustu gögnum hafa bitcoin-kauphallarsjóðir hlotið meira innstreymi fjár á síðustu 2-3 vikum en gullsjóðir. „Það bendir til sterks trausts stofnanafjárfesta. Þetta gefur geiranum breiðari og stöðugri grunn en áður,“ segir Daði.

Annað merki um aukna viðurkenningu geirans er að Coinbase, ein stærsta rafmyntakauphöll í Bandaríkjunum, var í síðustu viku tekin inn í S&P 500-vísitöluna. „Þetta er mikið skref. Það er mikið afrek að komast í hóp 500 stærstu fyrirtækja í Bandaríkjunum og sýnir að rafmyntageirinn er að fá aukna vigt.“

Spurður um horfurnar á rafmyntamörkuðum á árinu kveðst Daði vera mjög brattur.

„Sú bjartsýni er ekki síst því við erum að sjá breytta heimsmynd spilast út. Mjög stór hluti af alþjóðlegum fjárfestum er með mikinn hluta af sínu eignasafni í Bandaríkjunum. Vægi Bandaríkjanna í heimsvísitölu MSCI er 71%,“ segir Daði og bætir við að vendingarnar vestanhafs geri það að verkum að alþjóðlegir fjárfestar íhugi að minnka yfirvigt sína í bandarískum eignum.

„Þessi þróun skapar ný tækifæri fyrir óháða eignaflokka á borð við bitcoin og gull, þar sem slíkar eignir veita skjól fyrir pólitískri áhættu,“ segir Daði að lokum.

Höf.: Magdalena Anna Torfadóttir