Áslaug Írisar Katrínar Friðjónsdóttir opnar einkasýninguna Spegilmynd í Þulu, Marshallhúsinu, í dag, 24. maí, milli 17 og 19. Sýningin stendur til 29. júní.
Verk Áslaugar „einkennast af ríkri efnishyggju, sem rannsakar óhlutbundið myndmál með fjölbreyttu efni og aðferðum“, segir í tilkynningu. „Hún gerir tilraunir með áferð, eins og að teikna í og á steinaða fleti og samþætta stein við aðra hluti, sem leiðir af sér áberandi skúlptúrískt myndmál.“ Áslaug er með MFA frá School of Visual Arts í New York (2009) og BA í myndlist frá Listaháskóla Íslands (2006). Hún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum í söfnum og galleríum víðs vegar um heiminn.