Ákveðið neyðarástand ríkir í innviða- og vegakerfi landsins, að mati Runólfs Ólafssonar, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Hann segir alltof algengt að bikblæðingar verði á bæði veturna og sumrin

Signý Pála Pálsdóttir

signyp@mbl.is

Ákveðið neyðarástand ríkir í innviða- og vegakerfi landsins, að mati Runólfs Ólafssonar, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Hann segir alltof algengt að bikblæðingar verði á bæði veturna og sumrin. Hann kallar eftir því að notað verði malbik frekar en klæðning á vegi landsins.

Í samtali við Morgunblaðið segir Runólfur mjög algengt að tilkynna þurfi tjón til tryggingafélaga vegna bikblæðinga.

Mikið hefur verið um bikblæðingar á síðustu vikum vegna sólar og hlýinda. Flestar tilkynningar um bikblæðingar hafa komið af Vesturlandi.

Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs Vegagerðarinnar, segir tilkynningar einnig hafa borist frá Austurlandi, Norðurlandi og uppsveitum Suðurlands. Hún segir malbik fimm sinnum dýrara en klæðningu og að ekki fáist fjármagn til að malbika allt vegakerfið. signyp@mbl.is » 14

Höf.: Signý Pála Pálsdóttir