Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Úrvinnslusjóður hefur enn ekki svarað erindi Sorpu sem vill fá hærri greiðslur frá sjóðnum. Eru greiðslurnar hugsaðar til að mæta auknum kostnaði byggðasamlagsins vegna handflokkunar drykkjarumbúða frá öðrum blönduðum pappír í fyrra.
Morgunblaðið greindi frá beiðni Sorpu í mars. Alls fer Sorpa fram á að fá rúmar 67 milljónir króna fyrir árið 2024 en jafnframt er farið fram á að Úrvinnslusjóður endurskoði ákvörðun sína um að hafna sams konar beiðni fyrir árið 2023. Hljóðaði sú beiðni upp á tæpar 15 milljónir króna en hún náði aðeins til hluta ársins.
Ætla að svara fyrir sumarfrí
Sandra Brá Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs segir að sjóðurinn muni brátt taka afstöðu til erindis Sorpu. „Stjórn Úrvinnslusjóðs hefur ekki lokið við afgreiðslu erindis Sorpu en er með málið til skoðunar. Ég reikna með að umfjöllun stjórnar verði lokið fyrir sumarfrí,“ segir Sandra.
Aukinn kostnað Sorpu má rekja til þess að 1. júlí 2023 hóf Sorpa að senda blandaðan pappír til Svíþjóðar þar sem drykkjarumbúðir eru flokkaðar sérstaklega út með handvirkum hætti. Þessi handflokkun nær einnig til drykkjarumbúða, dagblaða og tímarita, bylgjupappa og rusls. Þetta er gert þess að draga úr kostnaði á síðari stigum í virðiskeðjunni. Jón Viggó Gunnarsson framkvæmdastjóri Sorpu hefur lýst furðu sinni á að Úrvinnslusjóður skuli hafa hafnað beiðni Sorpu um hærri greiðslur.