Heiður Sigga Beinteins tók við tilnefningunni í Kópavogi í gær.
Heiður Sigga Beinteins tók við tilnefningunni í Kópavogi í gær. — Ljósmynd/Kópavogsbær
Sigríður Beinteinsdóttir, betur þekkt sem Sigga Beinteins, er bæjarlistamaður Kópavogs 2025. Elísabet Sveinsdóttir, formaður menningar- og mannlífsnefndar, tilkynnti þetta við hátíðlega athöfn í Bókasafni Kópavogs í gær, en nefndin velur bæjarlistamann

Sigríður Beinteinsdóttir, betur þekkt sem Sigga Beinteins, er bæjarlistamaður Kópavogs 2025.

Elísabet Sveinsdóttir, formaður menningar- og mannlífsnefndar, tilkynnti þetta við hátíðlega athöfn í Bókasafni Kópavogs í gær, en nefndin velur bæjarlistamann. Í tilkynningu frá bænum segir að Sigga Beinteins sé ein af ástsælustu og virtustu söngkonum landsins.

Hún hefur verið búsett í Kópavogi um árabil, en með tilnefningunni gefst bæjarfélaginu tækifæri til að heiðra og þakka einstökum listamanni og styrkja tengslin við hana.

Í hlutverki sínu sem bæjarlistamaður hyggst Sigga Beinteins standa fyrir sérstakri söngskemmtun fyrir börn í efstu deildum leikskóla Kópavogs. Þá eru einnig fyrirhugaðir tónleikar í Salnum síðar á árinu, þar sem hún lítur yfir ferilinn og miðlar reynslu og sögum af langri og litríkri vegferð í tónlistinni.