Sund Iðulega meira fjölmenni í sundlaugum landsins þegar veðrið er gott.
Sund Iðulega meira fjölmenni í sundlaugum landsins þegar veðrið er gott. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Aukin ásókn hefur verið í sundlaugar höfuðborgarsvæðisins síðustu vikur en sundferðir njóta mikilla vinsælda þegar sólin skín eins og gefur að skilja. Haukur Geirmundsson íþróttafulltrúi Seltjarnarness segir við Morgunblaðið að veðurfarið sé helsti…

Aukin ásókn hefur verið í sundlaugar höfuðborgarsvæðisins síðustu vikur en sundferðir njóta mikilla vinsælda þegar sólin skín eins og gefur að skilja.

Haukur Geirmundsson íþróttafulltrúi Seltjarnarness segir við Morgunblaðið að veðurfarið sé helsti áhrifaþátturinn hvað varðar fjölda gesta í sundlauginni á Seltjarnarnesi.

„Það var alveg sneisafull laug þegar sólin skein. Margfalt fleiri komu í laugina undanfarna daga en venjulega á þessum tíma,“ sagði Haukur, sem vonast til að veðrið verði gott í sumar þó að það hafi versnað núna allra síðustu daga.

Einnig var rætt við Önnu Kristínu Sigurðardóttur, forstöðumann Vesturbæjarlaugar í Reykjavík, sem sagði ásókn einnig hafa aukist í sundlaugar Reykjavíkur upp á síðkastið. Það mætti klárlega rekja til veðursins. helgakb@mbl.is