Finnska varnarmálaráðuneytið sagði í gær að grunur léki á að tvær rússneskar herþotur hefðu rofið finnska lofthelgi. Átti atvikið sér stað fyrr um daginn undan ströndum Porvoo í suðurhluta Finnlands, en borgin er um 50 kílómetra sunnan við Helsinki.
Varnarmálaráðherra Finnlands, Antti Häkkänen, sagði í yfirlýsingu að Finnar tækju atvikið alvarlega og að rannsókn stæði yfir á því. Sér finnska landamæragæslan um rannsókn málsins og mun hún gefa nánari upplýsingar eftir því sem rannsókninni vindur fram.
Tilkynningin kemur degi eftir að Finnar lýstu því yfir að þeir fylgdust grannt með hervæðingu Rússlands hinum megin við landamæri ríkjanna.