Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur ekki ennþá tekið ákvörðun um hvernig tekið verður á gagnalekamálinu svokallaða. Þar voru gögn frá sérstökum saksóknara, sem nú er héraðssaksóknari, nýtt til rannsóknar hjá fyrirtækinu PPP, sem stundaði njósnir um almenna borgara hér á landi

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur ekki ennþá tekið ákvörðun um hvernig tekið verður á gagnalekamálinu svokallaða. Þar voru gögn frá sérstökum saksóknara, sem nú er héraðssaksóknari, nýtt til rannsóknar hjá fyrirtækinu PPP, sem stundaði njósnir um almenna borgara hér á landi. Viðbrögð eða aðgerðaleysi ríkissaksóknara hafa verið harðlega gagnrýnd og hefur Sigurður G. Guðjónssson hæstaréttarlögmaður lýst þeirri skoðun sinni að ríkissaksóknari ætti að segja af sér vegna málsins.

Þorbjörg gaf ekki kost á viðtali en Jakob Birgisson aðstoðarmaður hennar svaraði því í tölvupósti að samkvæmt lögum væri það ekki hlutverk ráðherra að meta hæfi saksóknara, ekki frekar en dómara. Þeir mætu það sjálfir.

Ekki bárust svör um hvort hún hefði metið eigið hæfi, þar sem hún starfaði hjá embætti ríkissaksóknara sem aðstoðarsaksóknari 2007-2008. Hún hóf aftur störf hjá embættinu 2013-2015 sem aðstoðarsaksóknari og síðast sem saksóknari hjá embættinu 2018-2020.

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður Miðflokksins hefur gagnrýnt málsmeðferð ráðherrans og varpaði fram spurningum um hæfi hennar, ríkissaksóknara og héraðssaksóknara á Alþingi í vikunni.

Hún bendir á að Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi lögreglumaður, hafi tilkynnt að hann víki af fundum stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þegar málið er tekið fyrir á þeim vettvangi. Grímur var samstarfsmaður stofnenda PPP hjá embætti sérstaks saksóknara á sínum tíma.

„Ráðherrann er fyrrverandi starfsmaður ríkissaksóknara. Núna er tæpur mánuður liðinn frá því að þetta mál kom upp og sá tími ætti að vera nægur fyrir ráðherrann að komast að niðurstöðu um sitt eigið hæfi og ekki síður hæfi þeirra embættismanna sem um ræðir.“

Höf.: Óskar Bergsson