Karlmennirnir tveir sem létust eftir mikinn eldsvoða á Hjarðarhaga á fimmtudag voru Bandaríkjamaður á sextugsaldri og Tékki á fertugsaldri. Lögreglan segir miður að láðst hafi að kalla til áfallahjálp á vettvang.
Ævar Pálmi Ævarsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði þetta við mbl.is. Annar mannanna lést á fimmtudag og hinn lést af sárum sínum aðfaranótt föstudags.
Fjórir menn hafa búið í kjallaraíbúðinni. Þrír þeirra voru í íbúðinni og tveir þeirra eru látnir. Sá þriðji er slasaður og liggur á spítala en er ekki í lífshættu.
Lögreglan hefur nú til rannsóknar hvort um íkveikju sé að ræða. Ævar getur ekki tjáð sig um hvort eitthvað sérstakt bendi til þess.
Sjónarvottar lýsa því að hafa heyrt mikinn hvell. „Meðal markmiða í brunarannsókninni er að átta sig á því hvers vegna þetta brennur svona með þessum hætti, þessari mögulegu sprengingu og hvernig eldurinn þróast,“ segir Ævar.
Hann kveðst heldur ekki getað tjáð sig um hvort bensínbrúsar hafi verið inni í íbúðinni en Vísir telur sig hafa heimildir fyrir því. Lögreglan hyggst ekki fara fram á gæsluvarðhald yfir neinum að svo stöddu.
Ævar segir ekkert benda til þess að fíkniefnaframleiðsla hafi farið fram í íbúðinni.
Lögreglan hefur sætt gagnrýni meðal íbúa fyrir að fá Rauða krossinn ekki á vettvang til að veita áfallahjálp.
„Því miður láðist að kalla eftir Rauða krossinum á vettvang strax, sem okkur þykir miður,“ segir Ævar, en bendir á símann 1717 fyrir þá sem þurfa á áfallahjálp að halda.
agnarmar@mbl.is