Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Úkraínumenn og Rússar hófu í gær skipti á stríðsföngum, sem ríkin tvö samþykktu á samningafundi sínum í Istanbúl í síðustu viku. Staðfestu stjórnvöld beggja ríkja að skipst hefði verið á 780 föngum, 390 frá hvorri hlið. Er fyrirhugað að ríkin skiptist á 2.000 manns í heild, 1.000 manns frá hvorri hlið, og eru þetta stærstu fangaskipti sem ríkin tvö hafa tekist á hendur frá upphafi allsherjarinnrásar Rússa árið 2022.
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði á samfélagsmiðlum sínum að fyrsta skrefi áætlunarinnar, sem nefnist „Þúsund fyrir þúsund“, væri nú lokið og gert væri ráð fyrir að fangaskiptin myndu halda áfram í dag og á morgun. Rússneska varnarmálaráðuneytið staðfesti einnig að fangaskiptin hefðu gengið í gegn, og að 270 rússneskir hermenn og 120 óbreyttir borgarar hefðu fengist lausir í skiptum fyrir 270 úkraínska hermenn og 120 óbreytta borgara.
Donald Trump Bandaríkjaforseti fagnaði fangaskiptunum á samfélagsmiðli sínum Truth Social, og óskaði hann báðum þjóðum til hamingju með að hafa komist að samkomulagi um þau. Lét hann í ljós vonir um að fangaskiptin gætu leitt til einhvers meira, en Trump hefur þrýst mjög á um að efnt verði til vopnahlés í Úkraínustríðinu. Hins vegar hafa rússnesk stjórnvöld verið ófús til þess að hefja slíkt vopnahlé áður en friðarviðræður fara fram.
Trump hefur meðal annars lagt til að þær viðræður fari fram í Vatíkaninu, þar sem hinn nýi páfi, Leó 14., hefur boðist til þess að vera gestgjafi fyrir þær. Utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov, sagði hins vegar í gær að hann hefði sínar efasemdir um hvort Páfagarður væri réttur staður fyrir viðræðurnar.
„Það væri örlítið ófágað fyrir tvö rétttrúnaðarríki að ræða á kaþólskri grundu þau mál sem snúa að því að eyða rótum átakanna,“ sagði Lavrov, en hann sakaði Úkraínumenn jafnframt um að hafa lagt stein í götu rétttrúnaðarkirkju landsins. Sagði Lavrov einnig að það gæti varla verið „þægilegt“ fyrir Vatíkanið að taka á móti sendinefndum ríkjanna tveggja við þær aðstæður sem nú væru uppi.