Starfsafmæli Gunnari Vigni sundkennara var komið rækilega á óvart í móttöku Vesturbæjarlaugar er hann kom út frá síðasta sundtíma dagsins. Þrjátíu ár eru liðin frá því að hann hóf sundkennslu í lauginni.
Starfsafmæli Gunnari Vigni sundkennara var komið rækilega á óvart í móttöku Vesturbæjarlaugar er hann kom út frá síðasta sundtíma dagsins. Þrjátíu ár eru liðin frá því að hann hóf sundkennslu í lauginni. — Morgunblaðið/Eyþór
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Vesturbæingar kannast margir við Gunnar Vigni Guðmundsson sem hefur nú séð um sundkennslu fyrir grunnskóla Vesturbæjar í 30 ár, en hann hóf störf árið 1995. Í tilefni þess ákváðu Vesturbæingar að honum bæri að fagna og var viðburðurinn auglýstur á Facebook, m.a

Helga Kjaran Birgisdóttir

helgakb@mbl.is

Vesturbæingar kannast margir við Gunnar Vigni Guðmundsson sem hefur nú séð um sundkennslu fyrir grunnskóla Vesturbæjar í 30 ár, en hann hóf störf árið 1995.

Í tilefni þess ákváðu Vesturbæingar að honum bæri að fagna og var viðburðurinn auglýstur á Facebook, m.a. á síðu hverfisins.

Var Gunnari komið á óvart í móttöku Vesturbæjarlaugar eftir síðasta sundtíma annarinnar í gær með köku, blómum og innrömmuðu listaverki af lauginni.

Gunnar hefur séð um sundkennslu á öllum aldursstigum grunnskóla í Vesturbæjarlaug, en sundkennsla fer fram frá sex ára aldri og upp í 15 ára.

Til að byrja með sá Gunnar um sundkennslu fyrir alla fimm skólana í Vesturbæ en fer nú að minnka við sig og verður í 50% starfi auk þess sem hann mun ekki kenna nemendum úr Hagaskóla áfram, en hann hefur ekki séð um kennslu í Grandaskóla í nokkurn tíma.

Spurður hversu mörgum nemendum Gunnar heldur að hann hafi kennt sund segir hann það vera ansi marga, en fjöldi nemenda hans hvern vetur geti náð upp í tvö þúsund. „Þetta eru allavega orðnir nokkur þúsund nemendur,“ segir hann.

Þrátt fyrir þann fjölda sem Gunnar hefur kennt þekkir hann flesta af gömlu nemendunum í sjón og marga meira að segja með nafni.

„Maður þekkir ansi marga sem maður rekst á hér og þar og stundum heyrir maður þessa frasa manns,“ segir Gunnar á þar við skipanir sínar úr kennslunni eins og: „Beygja, kreppa, sundur, saman.“ Skipanir sem allir nemendur hans ættu að kannast við.

„Ég held að það sé mjög mikilvægt að hafa kennsluna lifandi og skemmtilega og að allir fái að njóta sín. Maður reynir að vinna með styrkleika hvers og eins nemanda. Við reynum að miðla því til krakkanna að við séum jafn misjöfn og við erum mörg, en svo lengi sem nemendur leggja sig fram og gera sitt besta geta þeir verið ánægðir með sig.“

Gunnar segir að skemmtilegur hluti af kennslunni sé að vinna með öðrum og fá nýjar hugmyndir en síðustu ár hefur hann kennt ásamt íþróttakennurum skólanna.

„Maður er þakklátur fyrir að hafa verið í vinnu alla tíð sem maður mætir í á hverjum degi fullur tilhlökkunar.“

Höf.: Helga Kjaran Birgisdóttir