Lögreglan í Þrændalögum greindi frá því í gær að stýrimaðurinn, sem var á vakt þegar flutningaskip strandaði á fimmtudagsmorguninn, hefði viðurkennt að hafa verið sofandi þegar atvikið átti sér stað.
Var maðurinn, sem er Úkraínumaður á fertugsaldri, einn á vakt. Hann hefur verið ákærður fyrir vanrækslu. Þá rannsakar lögreglan einnig hvort brotið hafi verið gegn reglum um hvíldartíma sjómanna um borð í skipinu.
Flutningaskipið er 135 metrar á lengd, og munaði engu að stafn þess færi inn í kofa sem stendur við ströndina skammt frá Byneset í Þrándheimsfirði.
Johan Helberg eigandi kofans var einnig sofandi þegar atvikið átti sér stað og vaknaði hann við að æstur nágranni hringdi dyrabjöllunni til að láta hann vita af hinum óboðna gesti.