Rollur Lambakjöt er gjarnan á milli tannanna á landsmönnum.
Rollur Lambakjöt er gjarnan á milli tannanna á landsmönnum. — Morgunblaðið/Árni Torfason
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Bændur eru einróma um að ekki eigi að ana út í það að fella þessi lög úr gildi,“ segir Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, um fyrirhugað frumvarp atvinnuvegaráðherra til breytinga á búvörulögunum

Flóki Larsen

floki@mbl.is

„Bændur eru einróma um að ekki eigi að ana út í það að fella þessi lög úr gildi,“ segir Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, um fyrirhugað frumvarp atvinnuvegaráðherra til breytinga á búvörulögunum.

Hæstiréttur staðfesti einróma sl. miðvikudag að þær breytingar sem Alþingi gerði á búvörulögum á síðasta ári stæðust stjórnarskrá og sneri þar með við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur lagt fram frumvarp sem snýr að því að breyta búvörulögum til fyrra horfs, og styðst þar við niðurstöðu héraðsdóms. Það frumvarp situr nú í atvinnuveganefnd.

Morgunblaðið fjallaði í gær um umsagnir nokkurra samtaka um málið, þar sem sjónarmið um dóminn stönguðust á. Bændasamtök Íslands voru meðal þeirra sem lögðu fram umsögn.

„Í okkar umsögn ítrekuðum við hversu vont það er að vera ekki með neitt fast í hendi, að verið sé að fella lögin úr gildi án þess að það komi drög að nýjum lögum,“ segir Margrét.

„Ég myndi vilja að það væri aðeins andað ofan í kviðinn og að þessi lög yrðu í gildi þangað til önnur lög taka við,“ segir Margrét og bætir við: „Þar af leiðandi ætti ráðherra að bakka með þetta frumvarp.“

Umræðan villandi

Margrét segir umræðuna vera villandi og að verið sé að etja saman bændum og neytendum á meðan allir séu í sama liði.

Spurð hvernig það sé gert bendir Margrét á umsagnir frá Samkeppniseftirlitinu og Félagi atvinnurekenda, þar sem talað sé um að hag bænda sé ekki haldið til haga með gildandi lögum. „En þetta er það sem bændur vilja,“ segir framkvæmdastjórinn sem telur samstöðu ríkja meðal bænda um málið.

„Það er alveg merkilegt að búið sé að berjast fyrir þessu í 20 ár, eða í jafn langan tíma og forstjóri Samkeppniseftirlitsins hefur verið í embættinu,“ segir Margrét en Páll Gunnar Pálsson var ráðinn forstjóri árið 2005.

Samkeppniseftirlitið er meðal þeirra sem gagnrýna dóm Hæstaréttar í umsögn sinni. Þar telur eftirlitið að samkeppnishamlandi samruni og samstarf kjötafurðastöðva geti haft í för með sér óafturkræft tjón fyrir bændur og neytendur, eins og segir í umfjöllun Morgunblaðsins í gær.

Margrét segir dóm Hæstaréttar vera létti fyrir bændur, þar sem ákveðin niðurstaða hafi fengist um réttarfarslega óvissu. Þar með segir hún staðfest að þær ráðstafanir, sem farið hafi verið í á grundvelli þessara laga, gildi.

„Markmið og tilgangur laganna, eins og þau eru núna, er sá að bæta afkomu bænda án þess að það lendi á neytandanum og án aðkomu ríkisins,“ segir Margrét um búvörulögin.

Höf.: Flóki Larsen