— Morgunblaðið/Eyþór
Nokkrar ungar stúlkur í 10. bekk í Laugalækjarskóla hafa ákveðið að taka málin í sínar hendur og mótmæla sjókvíaeldi á Íslandi. F.L.Í.S. nefnist ný hreyfing gegn laxeldi í opnum sjókvíum. Að baki hreyfingunni standa þær Ísadóra Ísfeld Finnsdóttir,…

Nokkrar ungar stúlkur í 10. bekk í Laugalækjarskóla hafa ákveðið að taka málin í sínar hendur og mótmæla sjókvíaeldi á Íslandi.

F.L.Í.S. nefnist ný hreyfing gegn laxeldi í opnum sjókvíum. Að baki hreyfingunni standa þær Ísadóra Ísfeld Finnsdóttir, Karol Dayana Lagos Cruz og Oliwia Usico og eru þær ómyrkar í máli í sínum aktívisma enda stendur skammstöfunin fyrir „Fokk laxeldi í sjókvíum“.

Um er að ræða lokaverkefni stúlknanna en í gær skipulögðu þær mótmælagöngu frá Hlemmi að Austurvelli. Skilaboð þeirra eru skýr: að það sé kominn tími til að banna sjókvíaeldi fyrir fullt og allt. Hægt er að fylgjast með ferli stúlknanna á samfélagsmiðlum undir notendanafninu flis09.