Bernharð Sigursteinn Haraldsson, fv. skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri (VMA), er látinn, 86 ára að aldri.
Bernharð fæddist í Árnesi í Glerárþorpi 1. febrúar 1939 og ólst upp á Akureyri. Foreldrar hans voru Þórbjörg Sigursteinsdóttir, húsfreyja og verkakona, ættuð úr Hörgárdal, og Haraldur Norðfjörð Ólafsson frá Brekku í Glerárþorpi, sjómaður og netagerðarmaður.
Bernharð lauk stúdentsprófi frá MA árið 1959. Hann nam þýsku við háskólann í Freiburg í V-Þýskalandi 1959-1960, lauk BA-prófi í landafræði og mannkynssögu og prófi í uppeldis- og kennslufræði frá HÍ 1966 og stundaði nám í hagrænni landafræði við Kaupmannahafnarháskóla veturinn 1988-1989.
Bernharð kenndi við Gagnfræðaskóla Vesturbæjar 1966-1967, Gagnfræðaskóla Akureyrar 1960-1962 og 1967-1981, var yfirkennari þar 1981-1982 og skólastjóri 1982-1983. Samhliða kennslu var Bernharð leiðsögumaður með þýska ferðamenn. Bernharð var skólameistari VMA frá 1983 til 1999. Hann var fyrsti skólameistari skólans og vann ötullega að stofnun hins nýja skóla og uppbyggingu verkmenntunar á Akureyri. Undir stjórn Bernharðs og með fulltingi Hauks Ágústssonar og Adams Óskarssonar var VMA frumkvöðull í fjarkennslu.
Bernharð var skólamaður af lífi og sál og ritaði tvær bækur um skólasögu, Vann einnig að rannsóknum á ábúendasögu í Eyjafirði og kom að útgáfu nokkurra ritverka á því sviði.
Bernharð tók virkan þátt í bæjarmálum á Akureyri og átti sæti í menningarmálanefnd Akureyrar og nefnd um kennslu á háskólastigi á Akureyri er lagði grunn að stofnun Háskólans á Akureyri. Enn fremur var hann formaður Lyftingaráðs Akureyrar og félagi í Rótarýklúbbi Akureyrar.
Eftirlifandi eiginkona Bernharðs er Ragnheiður Hansdóttir, tannlæknir og sérfræðingur í bitlækningum. Þau gengu í hjónaband 1966 og eignuðust fjögur börn: Harald, Hans Braga, Arndísi og Þórdísi. Barnabörnin eru sjö og það áttunda er á leiðinni.