Mistök Lögmaður Búseta segir hlutverk Reykjavíkurborgar sem opinbers stjórnvalds og leyfisveitanda í málinu annað og meira en að miðla málum.
Mistök Lögmaður Búseta segir hlutverk Reykjavíkurborgar sem opinbers stjórnvalds og leyfisveitanda í málinu annað og meira en að miðla málum. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Ef borgarstjóri og kjörnir fulltrúar telja að um mistök borgarinnar hafi verið að ræða ber þeim skylda til að bæta úr þeim mistökum,“ segir Erlendur Gíslason, lögmaður hjá Logos, vegna ummæla Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra í…

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

„Ef borgarstjóri og kjörnir fulltrúar telja að um mistök borgarinnar hafi verið að ræða ber þeim skylda til að bæta úr þeim mistökum,“ segir Erlendur Gíslason, lögmaður hjá Logos, vegna ummæla Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra í blaðinu í gær, um að mistök á borð við græna gímaldið megi ekki endurtaka sig. Logos hefur gætt hagsmuna Búseta í deilum vegna gímaldsins við Álfabakka.

Hann segir skyldu hvíla á stjórnvöldum að bregðast við slíkri stöðu í stað þess að láta þá borgara sem verða fyrir tjóni og skerðingu á réttindum vegna þeirra mistaka þurfa að sækja málið fyrir kærunefndum og jafnvel dómstólum með tilheyrandi tíma og kostnaði.

Snýst ekki eingöngu um hönnun og útlit hússins

„Hlutverk stjórnvalda er að leysa úr málum í samræmi við lög og koma málum í lögmætt horf hafi mistök verið gerð.“

Í frétt Morgunblaðsins í gær sagði borgarstjóri að „mistök“ á borð við græna gímaldið mættu ekki endurtaka sig og hún hygðist setja skýrari leiðbeiningar í deiliskipulag til að koma í veg fyrir það.

„Hlutverk Reykjavíkurborgar sem opinbers stjórnvalds og leyfisveitanda í málinu er annað og meira en að miðla málum, eins og ráða má af umfjöllun borgarstjóra. Sú staða, að mannvirkið fékk að rísa í þeirri mynd sem nú blasir við, snýst ekki eingöngu um hönnun og útlit hússins, heldur að ekki var vandað til verka af hálfu stjórnvaldsins og annmarkar á málsmeðferð með þeim hætti að ef rétt hefði verið staðið að málum er ólíklegt að mannvirkið hefði risið í núverandi mynd.“

Ekki vegna gímaldsins

Erlendur segir að hjá fyrrverandi borgarstjóra og kjörnum fulltrúum hafi einnig komið fram á fyrri stigum að um mistök hafi verið að ræða.

„Skortur á viðeigandi reglum í lögum og reglugerðum eða skilmálum í deiliskipulagi eða leiðbeiningum skýrir ekki þá annmarka sem voru á málinu, eins og stjórnendur borgarinnar hafa ýjað að ítrekað í málflutningi sínum, heldur skortur á fylgni við reglur sem átti að fylgja við slíka málsmeðferð,“ segir Erlendur.

Í frétt blaðsins í gær var einnig sagt frá brotthvarfi Björns Axelssonar skipulagsfulltrúa, að umsögn embættisins um kjötvinnsluna hefði verið breytt, fundargerð tekin af heimasíðu og birt aftur eftir breytingu. Heiða Björg tók fram að orðalag í umsögninni hefði ekki verið málefnalegt og uppsögn Björns hefði ekkert með græna gímaldið að gera.

Höf.: Óskar Bergsson