Áskoranir Halla forseti sækir frekar í áskoranir en að forðast þær.
Áskoranir Halla forseti sækir frekar í áskoranir en að forðast þær. — Morgunblaðið/Ásdís
„Mér finnst mikill heiður að fá að sinna þessu hlutverki, ekki síður af því að þetta eru krefjandi tímar. Ég sæki frekar í áskoranir en að forðast þær og þær efla mig,“ segir forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, í viðtali við Sunnudagsblaðið

„Mér finnst mikill heiður að fá að sinna þessu hlutverki, ekki síður af því að þetta eru krefjandi tímar. Ég sæki frekar í áskoranir en að forðast þær og þær efla mig,“ segir forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, í viðtali við Sunnudagsblaðið. Þar ræðir hún um framtíðarsýn þjóðar, áhyggjur sínar af andlegri heilsu ungmenna og hvernig Ísland geti verið fyrirmynd annarra þjóða.

Halla vill að haldinn verði hér þjóðfundur á næsta ári.

„Getum við tekið samtal og leyft þjóðinni að hafa meiri aðkomu að því um hvað næstu fimmtíu árin snúast? Hvert erum við að fara til langs tíma?“ segir hún og telur að fólk ætti frekar að einblína á mikilvæg málefni en klæðaburð forsetans til að mynda.

„Hvernig eigum við að ræða stóru málin af yfirvegun þegar litlu málin verða að stormi í vatnsglasi og mest lesnu fréttunum?“