Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt að auglýsa á Skipulagsgáttinni tillögu að breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands, deiliskipulag vegna lóðarinnar nr. 1 við Birkimel.
Deiliskipulagsbreytingin er í samræmi við samkomulag Reykjavíkurborgar við olíufélögin um að fækka bensínstöðvum og byggja í staðinn íbúðir. Samkomulagið nær til bensínstöðvarlóðarinnar að Birkimel 1, en það var undirritað í júní 2021 af Degi B. Eggertssyni borgarstjóra. Lóðarhafi var Skeljungur hf., sem síðar framseldi réttinn.
Áformað er að byggja á lóðinni 4-5 hæða hús með 42 íbúðum af ýmsum stærðum og gerðum. Byggingin verður brotin upp og skipt í þrjá hluta sem stallast og hliðrast til meðfram Birkimel.
Byggingamagn ofanjarðar verður 4.120 fermetrar (fm) og neðanjarðar 1.452 fm, samtals 5.572 fermetrar.
Nú er á lóðinni eitt hús, 100 fermetra bensínstöð og veitingastaður. Húsið verður fjarlægt og sömuleiðis bensíndælur og rafhleðslustöðvar.
Í samgöngumati kemur fram að hið nýja hús muni höfða vel til til fólks sem vilji lifa bíllausum lífsstíl
Almenningur getur kynnt sér tillöguna á skipulagsgatt.is. Athugasemdafrestur er til 22. júlí 2025. sisi@mbl.is