Þorsteinn Már Baldvinsson
Þorsteinn Már Baldvinsson
Þorsteinn Már Baldvinsson hefur tilkynnt uppsögn sína sem forstjóri Samherja og lætur hann af störfum í júní. Þetta kemur fram í opnu bréfi sem Þorsteinn sendi starfsfólki Samherja. „Ég hef tekið ákvörðun um að láta af störfum sem forstjóri Samherja hf

Þorsteinn Már Baldvinsson hefur tilkynnt uppsögn sína sem forstjóri Samherja og lætur hann af störfum í júní. Þetta kemur fram í opnu bréfi sem Þorsteinn sendi starfsfólki Samherja.

„Ég hef tekið ákvörðun um að láta af störfum sem forstjóri Samherja hf. eftir að hafa gegnt því starfi í 42 ár eða frá stofnun félagsins árið 1983,“ segir í bréfinu.

Einnig kemur fram að stjórn félagsins hafi gengið frá ráðningu Baldvins Þorsteinssonar í stöðu forstjóra. Baldvin er jafnframt einn stærsti hluthafi Samherja og núverandi stjórnarformaður.

„Ég ákvað fyrir löngu að hætta á mínum forsendum áður en ég yrði gamall og leiðinlegur. Allt hefur sinn tíma og mér finnst þessi tímasetning rétt,“ segir Þorsteinn Már, sem lýsir djúpu þakklæti til starfsfólks Samherja og stofnenda félagsins.

Þorsteinn Már mun áfram gegna stjórnunarhlutverkum, meðal annars hjá Samherja fiskeldi og Síldarvinnslunni hf. fjola@mbl.is