Glaður Haukur fagnaði þegar Tottenham vann Manchester Utd. 1:0.
Glaður Haukur fagnaði þegar Tottenham vann Manchester Utd. 1:0. — Ljósmynd/Jón G. Hauksson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Haukur V. Bjarnason fylgdist með enska knattspyrnuliðinu Tottenham Hotspur fagna sínum fyrsta titli í 17 ár á miðvikudagskvöldið. Hann hefur verið einarður stuðningsmaður Spurs frá árinu 1940, eða í 85 ár

Flóki Larsen

floki@mbl.is

Haukur V. Bjarnason fylgdist með enska knattspyrnuliðinu Tottenham Hotspur fagna sínum fyrsta titli í 17 ár á miðvikudagskvöldið. Hann hefur verið einarður stuðningsmaður Spurs frá árinu 1940, eða í 85 ár. Þá var Haukur 12 ára en í dag orðinn 97 ára.

Liðið vann Manchester United í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Bilbao á Spáni. Þar áður hafði félagið ekki unnið titil síðan leikmenn þess lyftu enska deildarbikarnum á loft árið 2008. Haukur kveðst muna vel eftir því en félagið hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan.

„Það hefur verið hálfdapurt stundum, sérstaklega núna þetta ár hafa þeir verið ákaflega lélegir,“ segir Haukur um frammistöðu sinna manna undanfarin misseri. „Burtséð frá öllu, þótt þeir hafi unnið þetta, hefur verið alveg hörmung að horfa á þá sem aðdáandi. En maður verður bara að sætta sig við hlutina, þetta kemur stundum og stundum ekki,“ segir Haukur.

Tottenham er í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en lokaumferð hennar er á morgun. Titilþurrðin er þó loks á enda og Haukur fagnar því.

„Mér fannst leikurinn góður og ég var ánægður með þá, sérstaklega vörnina,“ segir hann. Þá segir Haukur tvo leikmenn hafa borið af en það séu markvörðurinn Guglielmo Vicario og miðvörðurinn Micky van de Ven.

„Hann bjargaði leiknum,“ sagði Haukur en Hollendingurinn í vörninni kom í veg fyrir mark andstæðinganna á marklínu á ögurstundu.

Fram númer eitt

Haukur er sjálfur knattspyrnukempa og er elsti núlifandi Íslandsmeistari í íþróttinni. Hann vann titilinn með Fram árin 1946 og 1947. „Fram verður aldrei yfirgefið, það er númer eitt,“ segir Haukur sem fylgist ekki síður með Fram en Tottenham.

Auk þess spilaði Haukur með landsliðinu, meðal annars í fræknum 4:3-sigri þess á liði Svía árið 1951 undir stjórn Óla B. Jónssonar, þar sem Ríkharður Jónsson skoraði öll fjögur mörkin.

„Það er sennilega einn eftirminnilegasti leikur sem hefur verið spilaður á Melavellinum,“ segir Haukur um sigur Íslands en allir landsleikir voru spilaðir þar. „Það var ekkert annað til, það var ekkert gras,“ segir Haukur en Laugardalsvöllur var ekki tekinn í gagnið fyrr en 1959.

Haukur fór síðar í golfið á áttræðisaldri og náði ágætum árangri. Þá var hann að hætta að vinna en Haukur er lærður húsasmíðameistari og var síðustu 20 árin á vinnumarkaði í Seðlabankanum.

Þegar Haukur stóð á áttræðu var hann með 13 í forgjöf sem þykir nokkuð gott miðað við aldur og fyrri störf. Sama ár fór hann holu í höggi. „En ég er ekki neinn unglingur í dag,“ segir Haukur, sem hefur nú lagt kylfuna á hilluna, rétt eins og takkaskóna.

Haukur heldur þó ótrauður áfram í áhorfinu. „Ég fylgist mjög vel með bæði enska boltanum og þessum stórmótum. Ég er bara í fullum gír þar,“ segir hann.

Með sigrinum í Evrópudeildinni hefur Tottenham áunnið sér rétt til að spila í meistaradeild Evrópu. Liðsins bíður því ærið verkefni. „Það þarf eitthvað að hrista upp í liðinu, það vantar svolítið af mönnum til að fylla skörðin,“ bendir Haukur á. Fróðlegt verði að sjá hvernig þjálfari liðsins, hinn ástralski Ange Postecoglou, tekst á við það fyrir næsta tímabil.

Höf.: Flóki Larsen