Ástand mannsins sem var stunginn í kviðarhol með stórum eldhúshnífi í Úlfarsárdal á miðvikudag er stöðugt, að sögn Ævars Pálma Pálmasonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu

Ástand mannsins sem var stunginn í kviðarhol með stórum eldhúshnífi í Úlfarsárdal á miðvikudag er stöðugt, að sögn Ævars Pálma Pálmasonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Til stóð að taka skýrslu af manninum í gær.

Lögreglan hefur lagt hald á vopnið en karlmaður um fertugt, sem er grunaður um að hafa stungið mann á fimmtugsaldri, hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald. Var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar.

„Rannsókn málsins heldur áfram. Gagnaöflun stendur yfir og það er enn verið að ræða við vitni sem voru á staðnum og þá erum við með talsvert af myndefni. Það er komin ágæt mynd á það sem gerðist á þessum tíma og svo er verið að kanna hver aðdragandinn að árásinni var,“ segir Ævar Pálmi.

Fjöldi vitna

Íbúar við Skyggnisbraut í Úlfarsárdal eru óttaslegnir yfir því ástandi sem skapast hefur í hverfinu. Íbúi, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir árásina sem hann varð vitni að ekki einsdæmi og lögregla hafi ítrekað verið kölluð til að hafa afskipti af sömu mönnum og voru viðriðnir árásina í fyrradag.

Íbúinn sagði við mbl.is að um hóp erlendra manna væri að ræða og héldu þeir hverfinu í heljargreipum með ofbeldi sem og áreitni í garð nágranna.

Árásarmaðurinn réðst að tveimur mönnum úti á miðri götu með stórum eldhúshnífi og varð fjöldi fólks vitni að árásinni, þar á meðal börn á leið heim úr skóla.