Sundahöfn Norwegian Prima (nær á myndinni) og MSC Preziosa lágu samtímis við Skarfabakka á fimmtudaginn. Það var handagangur í öskjunni þegar verið var að þjónusta farþega skipanna.
Sundahöfn Norwegian Prima (nær á myndinni) og MSC Preziosa lágu samtímis við Skarfabakka á fimmtudaginn. Það var handagangur í öskjunni þegar verið var að þjónusta farþega skipanna. — Morgunblaðið/Eggert
Það fjölgaði heldur betur í Sundahöfn í Reykjavík í vikunni þegar tvö risastór skemmtiferðaskip lágu samtímis við Skarfabakka. Um borð í skipunum voru samtals 9.079 manns, farþegar og áhöfn. Er þetta álíka fjöldi og í stórum kaupstað á Íslandi

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Það fjölgaði heldur betur í Sundahöfn í Reykjavík í vikunni þegar tvö risastór skemmtiferðaskip lágu samtímis við Skarfabakka.

Um borð í skipunum voru samtals 9.079 manns, farþegar og áhöfn. Er þetta álíka fjöldi og í stórum kaupstað á Íslandi. Nefna má að íbúar Akraness nálgast nú 9.000.

Norwegian Prima er 143,535 brúttótonn og með allra stærstu skipum sem hingað koma í sumar. Farþegafjöldinn er 3.014 og í áhöfn eru 1.443. MSC Preziosa er 139.072 brúttótonn. Farþegafjöldinn er 3.357 og í áhöfn eru 1.265.

Það var mikill erill í Sundahöfn á fimmtudaginn og langar raðir af rútum og leigubílum í farþegaflutningum. Mikill fjöldi fólks vann svo við að afgreiða skipin og farþega þeirra í Sundahöfn, bæði starfsmenn á vegum Faxaflóahafna og umboðsskrifstofa skipafélaganna. Mörg hundruð manns komu að því að þjónusta skip og farþega.

Í Norwegian Prima fóru fram farþegaskipti. Rúmlega þrjú þúsund farþegar fóru frá borði og annar eins fjöldi um borð í þeirra stað.

Þennan mikla fjölda farþega þurfti að innrita og einnig að gegnumlýsa farangurinn. Síðan þarf að flytja farangur frá borði og um borð og er það mikil vinna.

Aðstaða til að afgreiða farþega skemmtiferðaskipanna er þröng í sumar. Faxaflóahafnir eru að byggja 5.700 fermetra farþegamiðstöð sem á að vera tilbúin vorið 2026. Sett var upp bráðabirgðaaðstaða sem notast þarf við í sumar.

Samanlagður brúttótonnafjöldi skipanna tveggja er 282.607. Til samanburðar má nefna að stærstu kaupskip íslenska flotans, Dettifoss og Brúarfoss, eru 26.169 brúttótonn.

Litlu má muna að tvö svona stór skemmtiferðaskip geti ekki legið samtímis við Skarfabakka. Bakkinn er 650 metrar að lengd að samanlögð lengd skemmtiferðaskipanna tveggja er 632 metrar.

Norwegian Prima hélt úr höfn í fyrrakvöld og kom til Ísafjarðar snemma í gærmorgun. MSC Preziosa lét ur höfn seinnipartinn í gær.

Höf.: Sigtryggur Sigtryggsson