Brákarborg Torfið var fjarlægt af þakinu með stórvirkum tækjum.
Brákarborg Torfið var fjarlægt af þakinu með stórvirkum tækjum. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Skýrslan fór fyrir endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar sl. mánudag og var vísað þaðan til borgarráðs, en hún lá ekki fyrir fundinum,“ segir Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, í samtali við…

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

„Skýrslan fór fyrir endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar sl. mánudag og var vísað þaðan til borgarráðs, en hún lá ekki fyrir fundinum,“ segir Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, í samtali við Morgunblaðið, en skýrsla sú sem hér um ræðir er úttekt innri endurskoðunar og ráðgjafar á hönnun og framkvæmdum við leikskólann Brákarborg. Á fundi endurskoðunarnefndarinnar var skýrslunni vísað til borgarráðs, sem fundaði sl. fimmtudag.

Segir Hildur að gert sé ráð fyrir því að skýrslan verði tekin fyrir á næsta fundi borgarráðs sem halda á í byrjun júní. Hún segist engar skýringar hafa fengið á því af hverju skýrslan var ekki tekin fyrir á fundinum.

„Það er mikilvægt að fá skýrsluna til umfjöllunar sem fyrst, en ég geri ráð fyrir að þar sé mikilvægar upplýsingar að finna og upplýst um mál og niðurstöður sem fylgja þarf eftir. Ég vænti þess að skýrslan varpi ljósi á margvíslega annmarka á framkvæmd og handvömm borgarinnar í málinu og niðurstöðum skýrslunnar þarf að fylgja eftir af festu,“ segir Hildur.

Spurð hvað mögulega valdi hiki við framlagningu skýrslunnar segist hún ekki vita hverju það sæti, en segist ekki munu sofa á verðinum.

„Það hefur gjarnan gerst að erfiðum málum er frestað inn í sumarið, en við munum ekki leyfa því að gerast,“ segir Hildur.

Stórfelldir gallar komu í ljós í Brákarborg eftir að húsnæðið hafði gengið í gegnum umfangsmiklar og kostnaðarsamar breytingar. Kom í ljós að þungi þakplötunnar var allt of mikill eftir að steypulag hafði verið sett ofan á plötuna og torf í ofanálag. Leiddi það til þess að burðarvirkið var umfram álagsþol þess.

„Græna skóflan“

Þegar það kom í ljós var ráðist í kostnaðarsamar aðgerðir til úrbóta.

Nefna má að áður en hinir stórfelldu gallar komu í ljós hlaut byggingin viðurkenninguna „grænu skófluna“ og sagði Dagur B. Eggertsson þáverandi borgarstjóri að viðurkenningin „sýni hvernig hægt sé að endurbyggja gömul hús og veita þeim nýtt hlutverk á umhverfisvænan hátt“.

Höf.: Ólafur E. Jóhannsson