Gufunesbryggja Var notuð sem geymsla fyrir seglskútur í vetur. Á bryggjunni eiga að rísa mannvirki í framtíðinni.
Gufunesbryggja Var notuð sem geymsla fyrir seglskútur í vetur. Á bryggjunni eiga að rísa mannvirki í framtíðinni. — Morgunblaðið/sisi
Á síðasta fundi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur var lögð fram umsókn Yrkis arkitekta ehf. um breytingu á deiliskipulagi Gufuness, 1. áfanga, á svæði E, hafnarsvæði. Umsókninni var vísað til meðferðar verkefnastjóra

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Á síðasta fundi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur var lögð fram umsókn Yrkis arkitekta ehf. um breytingu á deiliskipulagi Gufuness, 1. áfanga, á svæði E, hafnarsvæði.

Umsókninni var vísað til meðferðar verkefnastjóra. Umsóknin verður tekin til formlegrar afgreiðslu þegar umsögn hans liggur fyrir.

Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í ágúst 2022 tillögu Þorpsins – vistfélags um útfærslu á Gufunesbryggju en Þorpið bar sigur úr býtum í alþjóðlegri samkeppni á vegum C40 Reinventing Cities um svæðið. Var Þorpinu veitt vilyrði fyrir lóðinni.

Samkvæmt vinningstillögunni er gert ráð fyrir uppbyggingu á hafnarsvæðinu og sjálfri Gufunesbryggju, hinni gömlu bryggju áburðarverksmiðjunnar.

Reisa átti tveggja hæða byggingu á höfninni með samgöngumiðstöð fyrir bátastrætó, heilsulind, sundlaug og veitingastað. Við höfnina var gert ráð fyrir 5-6 hæða byggingu með 19 smáíbúðum og leikskóla á jarðhæð.

Fram kemur í umsókninni sem nú er til umfjöllunar að eftir viðræður við skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar hafi verið ljóst að það yrði erfitt að koma fyrir leikskóla vegna skorts á útisvæði. Því er búið að endurskoða hæð hússins en heildarbyggingarmagni haldið óbreyttu.

Umfangsmikið kvikmyndaver

Varðandi smáíbúðirnar hefur verið horfið frá þeirri hugmynd vegna aukins umfangs kvikmyndavers á aðliggjandi lóð og er þess í stað gert ráð fyrir atvinnustarfsemi með áherslu á heilsu- og gististarfsemi, samkvæmt uppdráttum Yrkis arkitekta.

„Hugsunin að baki tillögunni er að bryggjan verði heilsumiðuð þjónustu-, atvinnu- og samgöngumiðstöð,“ segir í greinargerð Yrkis arkitekta.

Í samræmi við fjölbreytta starfsemi í Gufunesi muni bryggjan hýsa hótel og veitingastað, sem verður að hluta neðansjávar. Heilsulind tengist ströndinni með sundlaug, sjósundsaðstöðu, gufuböðum, heitum pottum og hvers konar líkamsrækt.

Við bryggjuna verði einnig aðstaða til siglinga á kajökum o.fl. Hótelbyggingin á að verða þrjár hæðir með þjónustu á jarðhæð.

Bent er á að bryggjur hafi í gegn um tíðina gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi, hvað varðar samgöngur, flutninga, veiðar og fleira. Um allan heim hafi eldri bryggjur orðið segull fyrir menningu og mannlíf.

Núverandi steyptar bryggjur í Gufunesi verði nýttar sem grunnur undir húsin og viðurinn úr gömlu bryggjunni notaður sem klæðning á nýjar byggingar.

Höf.: Sigtryggur Sigtryggsson