Vopnahlé strax Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Vopnahlé strax Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti á dögunum leiðtogafund í Madríd á Spáni þar sem tveggja ríkja lausn í deilum Ísraels og Palestínu var rædd. Fundurinn var liður í undirbúningi fyrir ráðstefnu sem haldin verður hjá Sameinuðu þjóðunum í New York í næsta mánuði

Andrea Sigurðardóttir

andrea@mbl.is

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti á dögunum leiðtogafund í Madríd á Spáni þar sem tveggja ríkja lausn í deilum Ísraels og Palestínu var rædd. Fundurinn var liður í undirbúningi fyrir ráðstefnu sem haldin verður hjá Sameinuðu þjóðunum í New York í næsta mánuði.

Þorgerður segist í samtali við Morgunblaðið hafa merkt það á fundinum að Frakkar séu að reyna að stíga skref til þess að viðurkenna sjálfstæði Palestínu á sama tíma og þeir leggi áherslu á að ríki fyrir botni Miðjarðarhafs tryggi öryggi fyrir Ísrael.

Leiðtogarnir horfi til tveggja ríkja lausnar til lengri tíma þannig að bæði Palestína og Ísrael geti lifað sem sjálfstæðar þjóðir í friði og farsæld. Hún segir afstöðu Palestínumanna þá að unnið verði að tveggja ríkja lausn.

Þorgerður gefur lítið fyrir kröfu þeirra sem tala máli Palestínu og vilja slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. „Ég tel það ekki skynsamlega lausn og ekkert þessara ríkja sem eru í stjórnmálasambandi við Ísrael horfir til þess að slíta því.“

Hún segir hluta af vandanum vera hversu vígreif ríkisstjórnin í Ísrael sé. „Alþjóðasamfélagið, þar með talið Bandaríkin, verður að veita ríkisstjórn Ísraels meira aðhald og koma á tafarlausu vopnahléi til þess að koma að neyðaraðstoð inn á svæðið.“

Á sama tíma sé það skilyrðislaus krafa að hryðjuverkasamtökin Hamas frelsi ísraelsku gíslana.

„Hluti af því að ástandið hefur stigmagnast svona er að Hamas hefur ekki leyst gísla úr haldi. Lausn gíslanna getur orðið stór og mikilvægur þáttur í því að vinna að friði á svæðinu. Það er ekki síst mikilvægt vegna þess að gíslarnir veita Ísraelum skjól til að haga sér jafn ömurlega og þeir gera núna.“

Þorgerður ítrekar að hún fordæmi framferði Hamas og minnist sérstaklega atburðanna í október 2023.

„Þetta var hryðjuverkaárás og það að þeir skuli enn halda gíslunum er óverjandi. Það breytir þó ekki því að það gilda alþjóðalög og Ísraelsmenn beita hungri sem vopni í stríðsátökum. Það er stríðsglæpur.“

Hún segir öllum misbjóða hvernig Ísraelsmenn koma fram. „Það er verið að drepa börn með hungurvopni og þess vegna var þessi mikli þungi á fundinum um helgina.“

Höf.: Andrea Sigurðardóttir