Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir
malin@mbl.is
Kristján Örn Elíasson, markaðsfræðingur og alþjóðlegur skákdómari, hefur boðið fram krafta sína til embættis forseta Skáksambands Íslands en kosning fer fram á aðalfundi sambandsins 14. júní. Kristján bauð sig fram árið 2023 en laut þá í lægra haldi fyrir sitjandi forseta, Gunnari Björnssyni.
Að sögn Kristjáns hefur hann starfað í skákhreyfingunni í rúm 30 ár. „Þetta er mitt líf og yndi. Ég er búinn að vera með þátt á Útvarpi Sögu um skák síðan 2023,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið. „Það er kominn tími á nýjan forseta og nýtt fólk og nýjar áherslur.“
Kristján leggur áherslu á að forseti Skáksambandsins eigi ekki að vera framkvæmdastjóri þess líka. Síðustu ár hafi Gunnar gegnt þessum embættum samhliða. „Það er meginregla hjá öðrum íþróttasamböndum að aðgreining sé milli forseta og stjórnar annars vegar og framkvæmdastjóra hins vegar,“ segir Kristján í stefnuyfirlýsingu sinni.
Kristján telur sig eiga meiri möguleika á sigri í þetta sinn. „Þegar ég bauð mig fram gegn Gunnari síðast þá hafði hann aldrei fengið mótframboð í 14 ár og ungir skákmenn höfðu aldrei kynnst kosningum,“ segir hann.
Gunnar Björnsson hefur verið forseti Skáksambandsins frá árinu 2009. Í samtali við blaðamann gaf hann ekki upp hvort hann hygðist gefa kost á sér aftur. „Það kemur í ljós á næstu dögum hvað ég geri. Kristján er hinn fínasti náungi, hvort hann býður sig fram hefur engin áhrif á mína ákvörðun,“ segir Gunnar.
Skáksamband Íslands stendur fyrir ýmsum skákmótum, til dæmis Reykjavíkurskákmótinu. Í sumar heldur sambandið upp á 100 ára afmæli með hátíð á Blönduósi. Þar verður Íslandsmótið í skák haldið þar sem nær allir sterkustu skákmenn landsins tefla um Íslandsmeistaratitilinn.