Fjármál Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka óskar viðræðna.
Fjármál Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka óskar viðræðna.
Ari­on banki óskaði í gær eft­ir viðræðum við Kviku banka um sam­ein­ingu fé­lag­anna. Erindið til stjórnar Kviku var und­ir­ritað af Benedikt Gíslasyni bankastjóra og Paul Horner stjórn­ar­for­manni Ari­on

Ari­on banki óskaði í gær eft­ir viðræðum við Kviku banka um sam­ein­ingu fé­lag­anna. Erindið til stjórnar Kviku var und­ir­ritað af Benedikt Gíslasyni bankastjóra og Paul Horner stjórn­ar­for­manni Ari­on.

Bréf­ið var birt eftir lokun markaða, en Ari­on segir að sam­einuð stæðu fé­lögin styrkari en hvort í sínu lagi. Nefnt er aukið svig­rúm til hagræðing­ar, lægri fjár­mögn­un­ar­kostnaður, meiri áhættu­dreif­ing og tæki­færi til tekju­aukn­ing­ar.

Stjórn Ari­on legg­ur til að við ákvörðun á skipti­hlut­falli í samruna verði stuðst við markaðsverð fé­lag­anna, með mögu­legri aðlög­un m.t.t. geng­isþró­un­ar á tilteknu tímabili.

Lagt er til að aðilar hittist sem fyrst til að ákveða til­hög­un og tímaramma viðræðna, en áreiðan­leika­könn­un­ þurfi að vera mark­viss og fram­kvæmd inn­an þröngs tíma­ramma. andres@mbl.is