Kaldársel Í sumarstarfi barna er áhersla lögð á leiki úti í náttúrunni.
Kaldársel Í sumarstarfi barna er áhersla lögð á leiki úti í náttúrunni. — Ljósmynd/Kaldársel
Sumarbúðirnar í Kaldárseli við Hafnarfjörð fagna 100 ára afmæli með hátíðarhöldum á morgun, uppstigningardag. Hátíðin er opin öllum að kostnaðarlausu. Hoppukastali á staðnum og boðið verður upp á pylsur

Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir

malin@mbl.is

Sumarbúðirnar í Kaldárseli við Hafnarfjörð fagna 100 ára afmæli með hátíðarhöldum á morgun, uppstigningardag. Hátíðin er opin öllum að kostnaðarlausu. Hoppukastali á staðnum og boðið verður upp á pylsur.

KFUM og KFUK hafa rekið sumarbúðirnar. Meginmarkmið sumarstarfsins hefur verið að miðla kristinni trú til barnanna, kenna þeim biblíusögur og bænir. Auk þess hefur verið áhersla á leiki úti í náttúrunni.

Dagskrá á morgun hefst kl. 11 með fánahyllingu. Í framhaldinu er söguganga um nærumhverfið og tvær gönguferðir á Helgafell annars vegar og í Fosshelli og Valaból hins vegar. Samkoma utanhúss með samsöng og hugvekju hefst svo klukkan 13. Erindi um Kaldársel fyrr og nú verður flutt nokkrum sinnum yfir daginn, skyggnusýning með myndum frá upphafi starfsins til dagsins í dag verður látin rúlla og stuttmynd sýnd frá 1948. Bílar geta ekki ekið upp að dyrum Kaldársels nema í undantekningartilvikum fyrir fólk sem á erfitt með gang en bílastæði eru um 800 metra frá skálanum. Stæði eru þó af skornum skammti svo fólk er hvatt til að hjóla á staðinn.

Skipulögð hjólaferð verður kl. 10 frá Hellisgerði í Kaldársel en leiðin er 8 km á malbikuðum stígum.

Höf.: Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir