Leikhópurinn Lotta frumsýnir söngleikinn um Hróa hött í kvöld klukkan 18 á Lottutúni í Elliðaárdalnum. Í framhaldinu heldur hópurinn með sýninguna til Vestfjarða og þaðan áfram hringinn um landið. Er þetta í annað sinn sem hópurinn sýnir Hróa hött…
Leikhópurinn Lotta frumsýnir söngleikinn um Hróa hött í kvöld klukkan 18 á Lottutúni í Elliðaárdalnum. Í framhaldinu heldur hópurinn með sýninguna til Vestfjarða og þaðan áfram hringinn um landið. Er þetta í annað sinn sem hópurinn sýnir Hróa hött og segir í fréttatilkynningu að það sé eitt vinsælasta leikverk Lottu fyrr og síðar. Nú sé Hrói snúinn aftur og mæti að þessu sinni prinsessunni Þyrnirós. Sýningaplan Lottu er að finna á heimasíðunni leikhopurinnlotta.is.