Gullhvelfingin Trump kynnti nýja loftvarnarkerfið í síðustu viku.
Gullhvelfingin Trump kynnti nýja loftvarnarkerfið í síðustu viku. — AFP/Jim Watson
Stjórnvöld í Norður-Kóreu fordæmdu í gær áform Bandaríkjastjórnar um að reisa hina svonefndu „gullhvelfingu“, en svo nefnist nýja loftvarnarkerfið sem Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í síðustu viku

Stjórnvöld í Norður-Kóreu fordæmdu í gær áform Bandaríkjastjórnar um að reisa hina svonefndu „gullhvelfingu“, en svo nefnist nýja loftvarnarkerfið sem Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í síðustu viku.

Norðurkóreska utanríkisráðuneytið sagði í tilkynningu, sem birt var í ríkisfjölmiðlinum KCNA, að „gullhvelfingin“ fæli í sér „mjög hættulega“ ógn við stöðugleika í alþjóðamálum, og að loftvarnarkerfið, sem á að geta stöðvað eldflaugar úr geimnum, gæti orðið kveikjan að kjarnorkustríði í geimnum.

Sagði ráðuneytið að svo virtist sem Bandaríkin væru „staðráðin“ í að vígvæða geiminn og að loftvarnarkerfið myndi verða kveikja að nýju kjarnorkuvopnakapphlaupi.

Vestrænir hernaðarsérfræðingar telja að leysa þurfi ýmsar tæknilegar og pólitískar áskoranir áður en „gullhvelfingin“ geti orðið að veruleika, en auk þess gæti hún orðið verulega kostnaðarsöm fyrir Bandaríkin.

Hong Min, sérfræðingur í málefnum Norður-Kóreu, sagði við AFP-fréttastofuna í gær að viðbrögð Norður-Kóreu bentu hins vegar til að þar á bæ teldu menn líklegt að „gullhvelfingin“ gæti grafið mjög undan þeirri ógn sem Bandaríkjunum stafar af kjarnorkuvopnum Norður-Kóreumanna. Þeir yrðu þá að þróa aðrar leiðir til þess að geta ógnað Bandaríkjunum með vopnabúri sínu.