Ráðherra David Lammy utanríkisráðherra Breta er væntanlegur.
Ráðherra David Lammy utanríkisráðherra Breta er væntanlegur. — AFP/Justin Tallis
David Lammy utanríkisráðherra Bretlands er væntanlegur í stutta vinnuheimsókn til Íslands á morgun, fimmtudag, ásamt sendinefnd. Svo segir í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

David Lammy utanríkisráðherra Bretlands er væntanlegur í stutta vinnuheimsókn til Íslands á morgun, fimmtudag, ásamt sendinefnd.

Svo segir í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins.

Kemur þar og fram að hann muni eiga tvíhliða fund með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, þar sem áherslan verður á öryggis- og varnarmál og náið samstarf ríkjanna í þeim efnum. Auk þess muni á fundinum gefast tækifæri til að ræða tvíhliða samskipti ríkjanna, málefni Atlantshafsbandalagsins og Úkraínu, norðurslóðir og stöðuna fyrir botni Miðjarðarhafs.

Þá er og fyrirhugað að breski utanríkisráðherrann kynni sér starfsemina á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, áður en hann heldur af landi brott síðar sama dag.

Segir utanríkisráðuneytið að engir aðrir breskir ráðamenn verði með utanríkisráðherranum í för til Íslands.

Í breskum fjölmiðlum kemur fram að utanríkisráðherrann muni einnig heimsækja Noreg í ferðinni.

Höf.: Ólafur E. Jóhannsson